Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Agnar Már Másson skrifar 8. júlí 2026 13:08 Lögregla lagði hald á 14 þúsund evra en á myndum frá lögreglu af vettvangi má sjá alls konar gjaldmiðla; íslenska, kínverska og bandaríska meðal annars. Samsett Mynd Stofnandi Rauðu regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks, lýsir áhyggjum af því að lögregla hafi lagt hald á laun mansalsþolenda. Það sé til þess fallið að stefna þeim í frekari skuld. Það sé einnig áhyggjumál að tveimur þolendum hafi verið vísað úr landi enda haldi þeir líklegast áfram að vera vændismansalsþolendur þar. Seljendur vændis veigri sér við að tilkynna ofbeldi til lögreglu.
Allir þeir sextán meintu mansalsþolendur sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bar kennsl á í umfangsmiklum aðgerðum sínum og handtökum í júní afþökkuðu aðstoð lögreglu. Fimm þeirra leituðu þó til Bjarkarhlíðar, miðstöðvar þolenda ofbeldis, samkvæmt upplýsingum þaðan. Logn Blómdal er í forsvari fyrir Rauðu regnhlífina, samtök kynlífsverkafólks, en hán segir vændisseljendur eiga erfitt með að treysta lögreglunni. Hópurinn veigri sér við því að tilkynna ofbeldi til lögreglu af hræðslu við það að þau verði sjálf ákærð. Logn Blómdal hjá Rauðu regnhlífinni.Vísir/Einar Þó að ekki sé refsivert að selja sjálfa þjónustuna segir Logn að enn sé ólöglegt að auglýsa hana auk þess sem enn sé að leigja til vændisseljenda. Því sé mikið í húfi. „Við höfum heyrt í konum sem segja að þær taki frekar ofbeldi frá kúnna heldur en að hringja í lögregluna af því að aðstæðurnar þegar þú hringir í lögregluna geta verið glæpavæðing fyrir að auglýsa þjónustuna þína. Það getur verið að það sé hringt í leigusalann og þú missir leiguíbúðina þína. Þetta eru hlutir sem gerast báðir á Íslandi.“ Fimm kaupendur vændis voru handteknir í aðgerðum lögreglu, fimmtíu vændiskaupendur náðust á mynd en auk þess voru tveir þolendur handteknir vegna ólöglegrar dvalar í landinu. Logn segir það áhyggjuefni að tveimur mansalsþolendum hafi verið vísað úr landi enda haldi þeir líklegast áfram að vera þolendur mansals í útlöndum. „Þetta er stórt áhyggjuefni fyrir okkur af því hvað erum við að brottvísa þessum þolendum mansals út í? Erum við að brottvísa þeim í verri aðstæður þar sem þau hafa ekki einu sinni peninginn til þess að borga annað hvort skuldina sína í mansalsaðstæðum eða borga reikningana sína ef þau eru ekki í mansalsaðstæðum?“ Hán lýsir einnig áhyggjum af því að lögregla hafi lagt hald á 14 þúsund evrur í reiðufé í aðgerðum sínum, sem séu væntanlega laun mansalsþolenda. Haldlagningin sé til þess fallin að stefna þolendum í enn frekari skuld. „Þegar lögreglan gerir launin þín upptæk þá skapar það neyð. Ef þú ert þolandi mansals þá skuldarðu ennþá. Ef þú ert í kynlífsgeiranum þá þarftu ennþá að borga reikningana þína. Alveg sama í hvaða ástandi þú ert; það er ekki jákvæður hlutur þegar lögreglan kemur og tekur peninginn þinn eða launin þín,“ segir Logn. Stefán Sveinsson, tengslafulltrúi íslensku lögreglunnar hjá Europol, útskýrði í kvöldfréttum Sýnar hvernig vændismansal fer fram þvert á landamæri. Þar kom fram að kínversk glæpanet stýri vændisstarfsemi hér á landi erlendis frá – nær alfarið í gegnum netið eða svokölluð „þjónustuver“.
Vændi Mansal Lögreglumál Kjaramál Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira