Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Lovísa Arnardóttir skrifar 3. júní 2026 23:32 Sérfræðingur hjá Vegagerð segir taka of langan tíma að steypa vegi. Ökumenn séu ekki nægilega þolinmóðir. Vísir/Vilhelm Oddur Sigurðsson Hagalín, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar, segir að þó svo að það sé svipaður kostnaður við að steypa og malbika götur taki steypan lengri tíma að þorna og vegfarendur hafi litla þolinmæði. Hann telur mikilvægara að gera upp allt vegakerfið en að fara núna að steypa vegi.
Rætt var við Odd í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag um steypun gatna. Áður hafi það snúist um kostnað en hann telji það frekar snúast um tíma. „Þolinmæði vegfarenda er ekki mikil, af því að þegar þú ert að steypa þá þarftu náttúrulega að bíða í ákveðinn tíma þar til steypan er búin að harðna, og þessi tími með malbiki, það er mun skemmri biðtími með það þar til þú getur hleypt þessum þyngri bílum á. En með steypunni er þetta talsvert miklu lengri tími,“ sagði hann. Kostnaðurinn væri í sjálfu sér ekki ósvipaður en tíminn skipti eflaust meira máli og svo kostnaður við viðhald. „Það hafa myndast hjólför í þessu eins og kannski orðið í Kollafirðinum sem dæmi, en það er náttúrulega orðið áratuga gamalt,“ segir Oddur. Vegurinn sé áratuga gamall en hafi staðið sig. „Á nýbyggingum þar sem er engin umferð, eins og til dæmis nýjar brýr eru náttúrulega steyptar. Þá þarftu ekki að hleypa umferðinni á strax, þannig að ég hugsa að það spili nú svolítið stóra rullu inn í það og þá líka tíminn að leggja þetta. Við erum ekki með neinar útlagningarvélar fyrir steypuna,“ segir hann. Sérstakar vélar til að steypa vegi Erlendis séu steyptir vegir og sérstakar vélar séu notaðar í það. Það sé tækjakostur sem vanti á Íslandi. Spurður um áhrifin á malbikið hér og annars staðar segir Oddur að það megi ekki gleyma áhrifum nagladekkjanna. „Hjólfaramyndun undan hefðbundnum dekkjum er ekkert rosalega mikil í malbiki,“ segir hann og að niðurbrot af völdum nagladekkja sé margfalt meira en af hefðbundnum dekkjum. Oddur segir eftirlit með malbikun og það sé ekki fræðilegur möguleiki að verktakar eða undirverktakar séu að blanda einhverju í malbikið til að breyta því. Þykkt þess fari eftir umferðarálagi og það sé bætt í ef álagið er mikið. Vinnan gæti verið dýrari Hvað varðar steypuna segir hann rúmmetraverð á steypu og malbiki svipað en endingin sé meiri á steypunni. Hann hafi þó ekki reiknað í þetta vinnuliðinn. „Þetta er náttúrulega allt annað heldur en að steypa einhverja gólfplötu. Þannig að vinnuliðurinn er líka örugglega talsvert mikið hærri og vinna versus efnið,“ segir hann og að vinnan gæti verið dýrari við að steypa vegi en að malbika þá. Kostnaðurinn við að steypa gæti verið minni með tilliti til þess hversu lengi hann endist en þá sé ekki búið að taka inn óþolinmæði vegfarenda. „Þú myndir ekkert vilja vera með götuna lokaða í viku,“ segir hann og þó svo að fylliefnin og bætiefnin séu búin að batna síðustu áratugina í steypunni þá taki tíma fyrir steypuna að þorna. „En ég held að tímafaktorinn sé alltaf þannig líka bara að þolinmæðin þrýtur í biðinni.“ „Núna erum við bara að berjast við að reyna að gera upp gamla þjóðvegakerfið okkar, þannig að ég held að við værum betur settir við að koma því í það stand sem þarf að vera með fljótari og ódýrari aðferðum.“
Vegagerð Reykjavík Reykjavík síðdegis Skipulagsmál Umferðaröryggi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira