Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. maí 2026 19:30 Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, ásamt málverki af sjálfri sér á Alþingi. vísir/sigurjón Fyrrverandi forseti Alþingis segir það hálfsúrrealískt að sjá málverk af sjálfri sér afhjúpað á þinginu níu árum eftir að hún gegndi embætti. Verkið kostaði tæpar tvær milljónir og vitnar í heimsfrægan listamann.
Eins og hefð er fyrir er máluð mynd af forseta Alþingis eftir að hann hefur lokið störfum í embætti. Núna er nýjasta myndin komin í safnið og það er af Unni Brá Konráðsdóttur sem var forseti Alþingis árið 2017 þegar hún var þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún tók við af Steingrími J. Sigfússyni sem forseti þingsins þegar Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Björt framtíð mynduðu ríkisstjórn í janúar 2017. Steingrímur tók síðan aftur við af henni sem forseti eftir að Björt framtíð dró sig úr ríkisstjórnarsamstarfinu og ný ríkisstjórn var mynduð í kjölfar kosninga. Portrettmyndin af Unni var afhjúpuð í gær við hátíðlega athöfn þar sem núverandi forseti þingsins var viðstödd ásamt núverandi og fyrrverandi þingmönnum. Hér fyrir neðan má sjá málverkið og athöfnina. Sat fyrir klukkustundum saman sjö árum síðar Unnur segir um mikinn heiður að ræða. „Ég er mjög ánægð með útkomuna. Ég skal alveg viðurkenna það að þegar ég var kosin forseti þingsins þá var það þetta sem ég kveið mest fyrir, ekki það að þurfa að ná samkomulagi milli átta ólíkra þingflokka og lenda í einhverjum óvæntum uppákomum inni í sal. Heldur akkúrat þetta augnablik því þetta er eitthvað sem maður hefur enga stjórn á hvernig kemur út.“ Um er að ræða hefð sem hefur staðið í fjöldamörg ár. Fyrrverandi forsetar fá sjálfir að velja hvaða listamaður málar myndina. „Þetta er mjög sérstakt og ég hugsa að ég geri þetta ekkert aftur. Þetta er auðvitað mikill heiður. Það er svo fallegt að vera treyst fyrir þessu hlutverki. Þetta er minning sem gerir mann hluta af sögunni hér. Þetta verk mun fylgja þinghúsinu svo lengi sem lýðveldið verður til.“ Stephen Lárus varð fyrir valinu í þetta sinn og fékk greiddar 1,8 milljónir fyrir verkið. Unnur sat fyrir í fjölmargar klukkustundir sjö árum eftir að hún hafði gegnt embætti. „Ég sagði fyrst við Stephen: Geturðu ekki bara tekið einhverja mynd frá því að ég var ung? Aðeins færri hrukkur og færri grá hár en hann sagði: Það gengur ekki, ég mála lifandi verur. Svo það var ekki umflúið að gera það og láta sig hafa þetta,“ segir hún og heldur áfram um ferlið: „Við byrjuðum að hittast í janúar á síðasta ári, beint eftir síðustu Alþingiskosningar. Þetta virkar þannig að Stephen teiknar af manni andlitsmyndir með blýanti. Hann teiknar frá öllum hliðum og lærir smám saman á viðfangsefnið, hvernig andlitið hagar sér. Síðan tókum við nokkrar myndir. Við völdum stað í þinghúsinu til að vinna með. Þegar ég var búinn að sitja fyrir hjá honum mjög mörgum sinnum þá tókum við endanlegar myndir á þessum stað og þá var mínu hlutverki lokið og hann byrjaði að mála sjálft verkið.“ Prince setti svip sinn á verkið Þá er komin mynd af Unni Brá en enn er beðið eftir mynd af Steingrími J. Sigfússyni sem tók við af henni og Birgi Ármannssyni, sem gegndi embættinu frá 2021 til 2024. Auðvitað má einnig búast við mynd af núverandi forseta þingsins, Þórunni Sveinbjarnardóttur. Það vakti mikla kátínu fréttamanns að heyra að málverkið vitnar í frægan listamann. „Jú, við Stephen eigum það sameiginlegt að eiga uppáhalds tónlistarmann sem við hlustuðum mikið á á meðan við vorum að vinna þessa vinnu. Það er aðeins vísað í hann í þessari mynd. Það er frá mér komið. Myndin er auðvitað máluð af listamanninum undir hans eigin leiðsögn. Þetta er að sjálfsögðu meistari Prince, langbestur.“ Þess vegna ertu klædd í fjólublátt? „Já, Purple rain, langbest.“ „Þetta er ekki það sem litla stelpan úr sveitinni á Suðurlandi gerði ráð fyrir þegar ég var að alast upp, að ég myndi standa hér og í þessari stöðu. En þetta er afskaplega skemmtilegt.“
Alþingi Myndlist Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira