„Mér finnst það ekki siðferðislega rétt“ Smári Jökull Jónsson skrifar 11. maí 2026 13:02 Fjóla St. Kristinsdóttir er sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem Borg er stærsti þéttbýliskjarninn. Vísir/MHH Fjöldi íbúa með ótilgreint heimilisfang hefur margfaldast í Grímsnes- og Grafningshreppi frá síðustu kosningum. Sveitarstjóri segir ekki siðferðislega rétt ef fólk skráir lögheimili sitt í sveitarfélaginu fyrir kosningar og svo til baka að þeim loknum og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá Þjóðskrá.
579 eru á kjörskrá í Grímsnes- og Grafningshreppi fyrir kosningarnar á laugardag sem er fjölgun um fjörtíu og sjö prósent frá síðustu kosningum. Fjölmörg frístundahús eru í hreppnum en í þeim má ekki skrá lögheimili en leyfilegt er að skrá lögheimili með ótilgreint heimilisfang. Fyrir síðustu kosningar voru 26 með ótilgreint heimilisfang í hreppnum að sögn Fjólu en nú eru 132 skráðir á þann hátt. Sveitarstjóri segir útskýringuna fyrst og fremst sýna hversu margir vilji búa í sveitarfélaginu. „Svo eru auðvitað framundan kosningar og það er hópur af fólki sem býr í sínum sumarhúsum og hefur boðið fram í fyrsta skipti sérlista. Það fylgir því framboði fólk sem er að skrá sig ótilgreint í hús,“ segir Fjóla St. Kristinsdóttir sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi. Upplifa að skortur á upplýsingum komi í bakið á fólki Fjölgunin hefur verið mikil síðustu mánuði og Fjóla segir ákveðinn ómöguleika í stöðunni, bæði fyrir stjórnsýsluna og íbúana sjálfa og hún kallar eftir betri upplýsingagjöf frá Þjóðskrá. „Að þegar fólk sæki um skráningu sem þessa að þá sé það upplýst um stöðuna eins og hún er, að í dag fylgir því þá að þú ert ekki inni á Creditinfo og ef þú ert með einhverjar viðbótarbætur eins og heimilisuppbót og þar fram eftir götunum þá falli það niður,“ segir Fjóla. „Af því að við erum líka að upplifa að það er að koma í bakið á fólki, þetta er kannski eitthvað sem það hafði ekki hugsað út í eða hafði hreinlega ekki upplýsingar um. Svo kemur ákveðinn þungi á okkur og við þurfum kannski að svara fyrir hluti sem að okkar mati ættu að vera hjá Þjóðskrá. Það er ákveðinn ómöguleiki í þessu fyrir alla.“ „Ég harma að það sé staðan“ Þá hefur borið á því að fólk hafi verið hvatt til að skrá sig á kjörskrá fyrir kosningar og geti síðan skráð lögheimili sitt aftur úr hreppnum að þeim loknum. „Okkur finnst það auðvitað grafalvarlegt og það verður að horfa á það að við erum hérna með gríðarlega stórt eða víðfemt sveitarfélag og hér eru ekki margir íbúar.“ Til dæmis sé skipting kostnaðar í samstarfsverkefnum ákveðin út frá íbúafjölda á ákveðnum tímapunkti. Um 3400 frístundahús eru í Grímsnes- og Grafningshreppi.Vísir „Við erum hér í mikið af samstarfsverkefnum við okkar nágrannasveitarfélög varðandi til dæmis umhverfis- og tæknisvið Uppsveita, við erum hér með skóla- og velferðarþjónustu sameiginlega, við erum með byggðaþróunarfulltrúa og erum mjög mörgum farsælum samstarfsverkefnum þar sem er tekin punkttaða í skiptingu kostnaðar út frá íbúafjöld á ákveðnum tímapunkti,“ segir Fjóla. „Það er auðvitað mjög alvarlegt fyrir okkur ef sú punktstaða er orðin ákveðið há og okkar kostnaðarhlutfall hækkar sem því nemur, svo skrá sig allir út og þá eru færri eftir til að standa undir þeim kostnaði. Það er ekki gott fyrir neinn og eitthvað sem okkur finnst auðvitað grafalvarlegt.“ Finnst þér siðferðislega rétt að fólk skrái sig á kjörskrá fyrir kosningar og svo aftur út að þeim loknum? „Nei, mér finnst það ekki siðferðislega rétt. Ég harma að það sé staðan,“ segir Fjóla. „Glöggt er gestsaugað“ Fjölgunin sé gríðarlege og ef það kæmi einn íbúi í hvert af þeim sumarhúsum á svæðinu, sem eru um 3400 talsins, þá yrði Grímsnes- og Grafningshreppur stærri en Hveragerði á einni nóttu. „Þannig að það þarf auðvitað að ganga í einhverjum takti við skipulag sveitarfélagsins, áform þess og fjárhagsáætlun. Að því leytinu til er þetta rosalega erfitt, ákvarðanataka og þjónusta til framtíðar. Við erum að búa til allskonar áætlanir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og þaer er verið að horfa í skipulagðar íbúðalóðir. Í rauninni höfum við ekkert annað til að byggja á hvernig við sjáum fyrir okkur að fjölgunin verði til framtíðar.“ Hún segist hafa lagt áherslu á að á skrifstofum sveitarfélagsins sé ekki verið að ræða pólitík heldur frekar að gætt sé að orðspori sveitarfélagsins. Aðstæður séu þó mjög sérstakar og þetta mál mikið í umræðunni. „Það er gott að ræða málin og það er gott að fá endurnýjun. Í vaxandi sveitarfélagi er mikilvægt að þar séu aðilar með staðbundna þekkingu á sveitarfélaginu og reynslu, en líka nýtt fólk til að fá nýuja sýn. Glöggt er gestsaugað.“ Vill að ríkið stígi upp og taki samtalið Hún upplifi samskipti góð við fulltrúa eigenda frístundahúsa, auðvitað megi bæta ýmsa þjónustu og allt fari í botn í sveitarfélaginu á sumarleyfistíma. Verið sé að vinna að stækkun aðstöðu fyrir sund og líkamsrækt, byggja göngu- og hjólastíga. Grenndarstöðvar og sorpþjónusta séu hitamál. „Við höfum átt samtal við félög sumarhúsahverfanna, regnhlífarsamtök sem hafa komið reglulega og unnið mjög góða vinnu í því að vera í hagsmunagæslu og eins í upplýsingagjöf til annarra sumarhúsafélaga sem eru eins og húsfélög í fjölbýlishúsum. Það eru fjölmörg sjónarmið og mismunandi aðstæður innan þessara hverfa. Þetta er ekki neinn einsleitur hópur.“ Hún vilji gagnrýna stjórnvöld þegar kemur að þessum málum. Leitað hafi verið eftir áheyrn stjórnvalda, ríkið þurfi að koma að vinnunni. „Við erum öll tilbúin í samtalið þegar kallið kemur. Það hefur bara ekki verið áhugi hjá ríkinu til þess að fara inn í þetta mál. Ég held að þetta sé svolítið heit kartafla sem enginn vill snerta. Ég hefði viljað sjá ríkið stíga upp og eiga samtalið við okkur öll.“
Grímsnes- og Grafningshreppur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Byggðamál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira