Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. apríl 2026 18:24 Flugvélin sem hinn látni stökk úr tók á loft af Hans Christian Andersen-flugvellinum í nágrenni Óðinsvéa. Hans Christian Andersen-flugvöllur Fyrrverandi formaður danska fallhlífasambandsins til margra ára varð vitni að banaslysinu í dag þar sem íslenskur maður á þrítugsaldri lét lífið. Hann segir að skömmu eftir að fallhlífin opnaðist hafi hún snúist upp á sig.
Flemming Olsson var sjálfur kominn til Beldringe skammt utan Óðinsvéa til að stökkva í fallhlíf þegar hann sá 24 ára Íslending hrapa til bana. Hann segir í samtali við fjónska miðilinn Fyens Stiftstidende að hann hafi fylgst með unga manninum stökkva úr flugvél í kílómetershæð. „Fallhlífin kemur út og opnast. En um leið og fallhlífin opnast byrjar hún að snúast. Ég sé að ekki er allt með felldu. Því miður er hún snúin alla leiðina niður til lendingar,“ segir hann. Hann var sjálfur nýkominn úr fallhlífarstökki og segir nokkra hafi verið á svæðinu að fylgjast með. „Eins og atburðarásin var hefði ég búist við fót- eða handleggsbroti eftir harða lendingu. En alls ekki að einhver myndi láta lífið,“ segir hann. Búnaðurinn sem hinn 24 ára Íslendingur stökk með er í eigu fallhlífafélags Óðinsvéa að sögn Flemmings. Hann segir búnaðinn skoðaðan eftir hvert stökk og að árlega fari fram ítarleg skoðun á öllum búnaði. Fallhlífin sem hinn látni bar segir hann í höndum sérfræðinga á vegum fallhlífasambandsns sem vinni að skýrslu um málið. Lögreglan á Fjóni rannsakar það sömuleiðis. Allesø-kirkja og Lumby-kirkja í nágrenninu tendra ljós til minningar um hinn látna í kvöld. Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.
Danmörk Íslendingar erlendis Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira