Inga sendir boltann á sveitarfélögin Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. apríl 2026 14:36 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. vísir/Lýður Valberg „Eins vil ég ítreka að það er gildandi samningur og ég kann því afar illa við fyrirsögn um að ég sé of upptekin að funda. Það er bara ótrúlega skrítið. Sér í lagi þegar við erum með gildandi samning.“
Þetta segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við yfirvofandi örlögum Foreldrahúss. Foreldrahús mun loka starfsemi sinni að öllu óbreyttu þann fyrsta maí. Úrræðið tekur á móti rúmlega 1500 foreldrum ár hvert í ráðgjöf vegna vímuefnavanda um sex hundruð ungmenna . Um er að ræða snemmtæka íhlutun til að koma í veg fyrir að börn leiðist í vímuefnanotkun. Stofnaður hefur verið undirskriftarlisti í því skyni að reyna að bjarga starfseminni með stuðningi frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss hefur sagt Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, of upptekna til að funda með forsvarsmönnum úrræðisins. Inga segir það fjarri lagi í samtali við fréttastofu. „Við erum nú enn þá með gildandi samning við Foreldrahús þar sem mennta- og barnamálaráðuneytið veitti 12,5 milljóna króna styrk í starfsemina sem í rauninni gildir til 3. september næstkomandi. Þau hafa verið hvött til að sækja um eins og gengur og umsóknin hljóðaði upp á 100 milljónir króna,“ segir Inga sem bætir við að það hafi áður komið fram að það kosti 60 milljónir að halda úti starfseminni. Hún segir það ekki hafa komið til skoðunar að finna einhvers konar málamiðlun. „Þetta hefur ekki farið lengra. Það er bara þannig. Ef ég segi alveg eins og er þá finnst mér það eðlilegasti hlutur í heimi að hvetja sveitarfélögin til að taka utan um þessa forvarna- og fyrsta stigs þjónustu. Þar sem við ákváðum ný ríkisstjórn að taka utan um þriðja stigs vandann, sem er gífurlega kostnaðarsamur fyrir sveitarfélögin. Þannig lítum við á málin. Eins vil ég ítreka að það er gildandi samningur og ég kann því afar illa við fyrirsögn um að ég sé of upptekin að funda. Það er bara ótrúlega skrítið. Sér í lagi þegar við erum með gildandi samning.“ Hún tekur fram að starfsemi foreldrahúss sé einkar mikilvæg og verðug þjónusta. Hún vonar að þau finni leið til að starfsemin geti haldið áfram. „Þetta er svona snemmtæk íhlutun og forvörn fyrir börnin okkar. Það er verið að grípa börnin okkar í Foreldrahúsum áður en þau eru komin það langt í sínum erfiðleikum að þurfa að fara á Stuðla eða nýta sér þriðja stigs þjónustu ríkisins. Það eru einhver sveitarfélög sem hafa þegar gripið inn í og hafa verið að niðurgreiða viðtalstíma. Hver og einn tími kostar 22 þúsund krónur hjá Foreldrahúsi. Það sést náttúrulega að það er ekki á færi allra að greiða 22 þúsund krónur fyrir viðtal ef það er ekki niðurgreitt. Í þessu tilviki er þetta að okkar mati frekar á höndum sveitarfélaganna þar sem þetta er forvörn og fyrsta stigs þjónusta.“ Hún hvetur sveitarfélög til að bregðast við vandanum.
Fíkn Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarmál Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira