Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Kjartan Kjartansson skrifar 1. apríl 2026 11:40 Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, (t.v.) og Andrés Magnússon, blaðamaður Morgunblaðsins, (t.h.) tóku höndum saman um að blekkja bíleigendur um kílómetragjald í dag. Vísir/Vilhelm Aprílgabb sem birtist í Morgunblaðinu og mbl.is í morgun um meinta niðurfellingu á kílómetragjaldi var með vitund fjármálaráðherra. Skattstjóri segir blekkingar af þessu tagi ekki heppilegar. Ráðherra segist sennilega ekki hafa gefið grænt ljós á gabbið hefði hann vitað hvernig það yrði útfært.
Slegið var upp í Morgunblaðinu og á vefsíðu blaðsins að hægt væri að sækja um afslátt eða niðurfellingu á kílómetragjaldi hjá Skattinum vegna sérstakra aðstæðna í dag. Umsókn um það þyrfti að berast fyrir lok dags í dag. Fréttinni fylgdu beinar tilvitnanir í Daða Má Kristófersson, fjármálaráðherra, sem virtust styðja fullyrðingar blaðsins um afsláttinn. Kílómetragjaldið hefur verið umdeilt og þúsundum undirskrifta verið safnað gegn því á undanförnum dögum. Enginn fótur er þó fyrir fréttinni eins og bent er á í knappri tilkynningu á vef Skattsins. Þar segir að fréttin sé aprílgabb blaðsins. Stjórnendur Skattsins lýsa óánægju með uppátækið vegna álags á starfsfólk og viðskiptavini. Daði Már segir að Morgunblaðið hafi leitað til hans varðandi aprílgabb um kílómetragjaldið. Hann vissi ekki hvernig það yrði en hann hefði ekki talið ástæðu til þess að gera athugasemd við það. Beinar tilvitnanir í hann séu tilbúningur blaðamanns Morgunblaðsins. „Ég sagði þeim að þetta væri þannig efni að ég myndi nú ráðleggja þeim að fara varlega,“ segir fjármálaráðherra við Vísi. Eykur álag á Skattinn og viðskiptavini Gabbið vakti ekki kátínu hjá Skattinum sem þurfti að takast á við afleiðingar þess í morgun. Unnur Ýr Kristjánsdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs Skattsins, segir að stofnunin hafi ekki haft neinar upplýsingar um hvað stæði til. „Við hörmum þetta gabb því við viljum veita góða þjónustu og þetta er ekki til þess fallið. Okkur þykir afskaplega miður að fólk sé jafnvel að koma langan veg í svona erindisleysi,“ segir hún við Vísi. Snorri Olsen ríkisskattstjóri.Stjórnarráðið Snorri Olsen, skattstjóri, segist ekki vita til þess að Skatturinn hafi fengið formlega ábendingu um gabbið frá ráðuneytinu. „Við auðvitað viljum helst að okkar viðskiptavinir séu vel upplýstir og fái góða þjónustu. Það er náttúrulega ekki heppilegt að blekkja þá,“ segir Snorri. Gabbið eykur álag á framlínustarfsfólk Skattsins og viðskiptavini hans, að sögn Unnar Ýrar. Hún vill ekki tjá sig um hvort að það hafi verið dómgreindarleysi af ráðherra að taka þátt í gabbi af þessu tagi. „Skatturinn hafði engar upplýsingar um að þetta stæði til og þetta kom okkur bara í opna skjöldu þegar við lásum þetta inn á mbl í morgun.“ Ekki virðist þó almenn vitneskja hafa verið um gabbið því Vísir fékk upphaflega þær upplýsingar frá ráðuneytinu að ráðherra hefði ekki verið með í ráðum og að tilvitnanir í hann væru skáldaðar af hálfu Morgunblaðsins. Síðar sagði það að ráðherra hefði vitað af gabbinu fyrir fram. Meðvitaður um gremju Skattsins Daði Már segist meðvitaður um óánægju starfsmanna Skattsins. Hann hefði aldrei haft frumkvæði að gabbinu sjálfur og þess vegna hafi hann beðið Morgunblaðið um að stíga varlega til jarðar. Hefðirðu samþykkt þetta ef þú hefðir vitað hver útfærslan yrði? „Nei, það hefði ég sennilega ekki gert. En ég vil nú líka viðurkenna að mér finnst þessi siður að gera aprílgabb býsna skemmtilegur og hefði þess vegna þurft mikið til að ég segði nei. En eins og ég segi þá vissi ég ekki hver útfærslan yrði.“ Álag á Skattinn jókst eftir gabb um kílómetragjald.Vísir Finnst þér eftir á hyggja að það hafi verið dómgreinarleysi? Ég veit það ekki. Eins og ég segi, kannski hefði ég átt að krefjast þess að fá að vita nákvæmlega um hvað þetta snerist.
Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Aprílgabb Kílómetragjald Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira