Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Jakob Bjarnar og Samúel Karl Ólason skrifa 2. febrúar 2026 14:37 Kári Stefánsson segir það með ólíkindum að fjölmiðill vilji afvegaleiða lesendur sína til að fóðra athugasemdakerfi miðilsins. Ekkert mark var tekið á athugasemdum hans af hálfu ritstjórnar Morgunblaðsins. vísir/vilhelm Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir þá fugla versta sem skíta í eigin hreiður. Hann er afar ósáttur við að því sé slegið upp að nafn hans hafi verið að finna í Epstein-skjölunum.
Kári bendir á að í tvo daga hafi eftirfarandi fyrirsögn verið á á mbl.is: Kári Stefánsson í Epstein skjölunum Hann segir það enga spurningu að með fyrirsögninni sé Morgunblaðið að gefa í skyn að hann hafi verið í einhvers konar samskiptum við hinn látna barnaníðing. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Kára. „Það er hins vegar ljóst við lestur fréttarinnar undir fyrirsögninni að blaðið vissi betur. Þar af leiðandi var blaðið vísvitandi að afvegaleiða lesendur sína.“ Segir Mbl bert af smelludólgshætti Kári segir þetta nokkurn vegin eins slæma blaðamennska og hugsast getur. Og greinir frá því að í gær hafi hann haft samband við málsmetandi mann úr ristjórn Morgunblaðsins og farið þess á leit að fréttin yrði tekin niður. Hann fékk þau svör að það væri ekki í samræmi við vinnbrögð blaðsins að fjarlægja aðdróttun sem þó vitað sé að er algjörlega út í hött. Skjáskot af frétt Mbl um að Kári sé í Epstein-skjölunum. Kári er harla ókátur með fréttaflutninginn. „Ég vil leggja á það áherslu að með þessari framkomu er Morgunblaðið ekki að vega að mér vegna þess að þeir sem það vilja sjá glöggt að fyrirsögnin er út í hött. Það er hins vegar afleitt þegar lesendur sjá að blaðið hikar ekki við að afvegaleiða þá til þess að ná athygli og með því stríðala athugasemdakerfi sitt. Eða eins og segir í gamalli íslenkri hasarbók: Þeir fuglar eru vestir sem skíta í eigið hreiður.“ Tölvupóstar tengja Kára við Epstein-skjölin Sé leitað að nafni Kára í gagnasafni dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna koma upp tvö skjöl. Í báðum tilfellum er um að ræða tölvupósta. Annar þeirra er frá 2009 og snýst um vandræði deCODE þá og mögulegar rekstrarbreytingar til að taka á þeim vanda. Hinn er frá 2010 en þar er um að ræða yfirlýsingu frá talsmanni deCODE sem var áframsendur á Epstein. Báðir póstarnir eiga rætur að rekja til Henry Jarecki, fjárfestis. Epstein-skjölin innihalda öll þau gögn sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í gegnum árin vegna rannsókna sem tengst hafa brotum Epsteins og annarra sem honum tengjast, eins og Ghislane Maxwell, fyrrverandi kærustu hans og aðstoðarkonu til langs tíma. Meðal annars er um að ræða tölvupósta Epsteins og önnur skilaboð, skrár sem fundust í tölvum hans á borð við myndir sem hann hafði sótt á netið og ýmislegt annað. Það að nafn einhvers komi fram í skjölunum þarf ekki að þýða að viðkomandi hafi verið grunaður um að hafa brotið af sér á einhvern hátt.
Fjölmiðlar Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira