Georgíumaður hafi kvænst Letta til þess að fá dvalarleyfi Árni Sæberg skrifar 3. nóvember 2025 14:32 Héraðsdómur Reykjaness mun dæma í málinu. Vísir/Vilhelm Georgíumaður hefur verið ákærður fyrir brot gegn lögum um útlendinga, með því að hafa kvænst lettneskri konu í Georgíu, í þeim tilgangi einum að afla sér dvalarleyfis og atvinnuleyfis á Íslandi á grundvelli hjúskapar. Þriðji maður er ákærður fyrir að hafa komið hjúskapnum í kring.
Þetta kemur fram í fyrirkalli og ákæru á hendur Georgíumanninu, sem birt var í Lögbirtingablaðinu í dag. Það er gert þegar ekki tekst að birta mönnum ákæru með hefðbundnum hætti. Þar segir að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum gjöri kunnugt að höfða beri sakamál á hendur Georgíumanninum, sem sé 39 ára, og lettneskum manni, sem sé 26 ára, fyrir brot gegn lögum um útlendinga. Georgíumaðurinn hafi þann 28. mars 2024, í Georgíu, gengið í hjúskap með tvítugri konu, ríkisborgara Lettlands, einungis í þeim tilgangi að reyna að afla sér dvalarleyfis og atvinnuleyfis á Íslandi á grundvelli hjúskapar. Maðurinn og konan hafi komið til landsins þann 30. mars 2024 og hann hefði veitt henni loforð um greiðslu þegar hann fengi dvalarleyfi hér á landi. Þriðji maðurinn, sem sé Letti, sæti ákæru fyrir hlutdeild í broti gegn lögum um útlendinga, með því að hafa á tímabilinu frá 1. febrúar 2024 til 30. mars 2024, veitt Georgíumanninum liðsinni við framningu brots hans, bæði í orði og verki. Hann hafi haft milligöngu um og sannfært konuna um að fallast á að ganga í hjúskap með Georgíumanninum, auk þess sem hann hafi ferðast með hjónunum til Íslands.
Dómsmál Innflytjendamál Georgía Lettland Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira