Smittölurnar það fyrsta sem Willum horfir til Kolbeinn Tumi Daðason og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa 14. desember 2021 16:48 Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra minnir á að hér á landi geti börn farið í skólann og fólk til vinnu, á meðan það lendir ekki í sóttkví. Vísir/Vilhelm Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir hverja klukkustund skipta máli í veitingaþjónustu. Því sé horft til þess að geta lengt opnunartíma. Smittölurnar bjóði ekki upp á það sem stendur.
Willum tilkynnti framlengingu á aðgerðum um tvær vikur í síðustu viku. Almennar fjöldatakmarkanir eru upp á 50 manns en með notkun hraðprófa og gríma er heimilt að halda 500 manna viðburði. Opnunartími veitingastaða er til klukkan tíu en allir þurfa að vera farnir út klukkan ellefu á kvöldin. Þá er hámarksfjöldi gesta á sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum 75% af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Willum sagði í síðustu viku að vel kæmi til greina að aflétta takmörkunum fyrr en innan tveggja vikna. Ómíkron smitin orðin fjörutíu „Við munum, og bindum vonir við að geta slakað til fyrr ef gögn benda okkur á að það sé óhætt,“ sagði Willum í síðustu viku og vísaði til rannsókna á ómíkron afbrigðinu. Hann segir stöðuna tekna á hverjum degi. „Það hefur aðeins fjölgað í smitum. Held það sé komið í fjörutíu sem hafa greinst með þetta afbrigði,“ segir Willum. Hann segir nýgengi smita frekar upp á við en haldist samt heilt yfir í horfinu. Nýgengið hafi verið jafnt í dágóðan tíma. Hann segist horfa til nýgengis smita. „Það er það fyrsta sem maður horfir til. En við fylgjumst mjög grannt með stöðunni og horfum til þess að vilja létta á. Markmiðið er að halda samfélaginu sem mest gangandi.“ Hver klukkustund í veitingaþjónustu skipti máli Willum segir að þegar hann horfi til þess að halda samfélaginu gangandi horfi hann til þess að gríðarlega mikið sé undir hjá mörgum rekstraraðilum. „Hver klukkutími í veitingaþjónustu skiptir máli. Sannarlega horfum við til slíkra hluta. Ferðaþjónustan er á þeim tíma þar sem ekki er háönn en við þurfum að horfa til allra geira.“ Hætt er að hleypa inn á veitingastaði klukkan 22 og allir þurfa að vera komnir út klukkan 23. Það gildir um Lebowski bar eins og aðra hér á landi.Vísir/Vilhelm Willum horfir nú mikið til menningarinnar og veitingaþjónustunnar. Áfram þurfi að vinna á lausnamiðaðan hátt með viðburðahöldurum án þess að taka of mikla áhættu. Á Norðurlöndum er notast við bólusetningapassa í bland við hraðpróf. „Sóttvarnalæknir hefur auðvitað horft til þessara hluta. Það er hans hlutverk, veitir okkur ráð í þeim efnum,“ segir Willum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur viðrað þá hugmynd að fólk sem fái örvunarskammt verði undanþegið hraðprófum. Ein þjóð í einu landi „Ég hef verið skýr að mér hugnast ekki að skilja á milli hópa. Fólk er af mörgum ólíkum ástæðum, meðal annars læknisfræðilegum ástæðum, getur ekki þegið bólusetningar. Við þurfum að vera ein þjóð í einu landi í þessu eins og kemur að mörgu öðru.“ Hann segist ekkert geta sagt til um það núna hvort fólk geti skemmt sér lengur fram eftir yfir hátíðarnar, blásið til stórra áramótapartýja. „Við þurfum alltaf að fara varlega þegar við viljum hafa gaman. Það er dálítið að slá á væntingarnar núna það sem er að gerast í nágrannalöndum okkar. Þeir eru að herða sínar takmarkanir, meira en er hér. Við höfum látið meðalhófið ráða og haldið hlutunum gangandi, þess vegna kannski ekki þurft að bregðast jafn hart við.“ Hraðprófin hafi nýst vel til að fólk geti sótt viðburði, tónleika og fleira. En staðan sé auðvitað ekki fullkomin. „En börnin eru að fara í skólana, við erum að mæta í vinnuna. Það er helst þegar fólk mætir þeim veruleika að þurfa að fara í sóttkví. Það er íþyngjandi fyrir fólk.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Veitingastaðir Samkomubann á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira