Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Tveir nýir veitingastaðir, Dom Brasserie & Bar og Lauf Bistro, hafa opnað á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju. Íslandshótel annast rekstur beggja staðanna, sem eru hluti af aukinni áherslu félagsins á veitingarekstur samhliða fjölgun hótela í rekstri þess, að því er fram kemur í tilkynningu. Viðskipti innlent 7.10.2026 13:04
Ice Spice fór á klósettið á OTO Tónlistarkonan Ice Spice er á Íslandi en hún er einn heitasti rapparinn í Bandaríkjunum um þessar mundir. Lífið 2.10.2026 22:01
Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Patrik Atlason, söngvari og KFC-erfingi, birti myndskeið og staðfesti í samtali við Morgunblaðið að opna ætti nýjan KFC-stað í húsnæði Lyfjavals við Hæðasmára í Kópavogi. Hann hefur nú beðist afsökunar á gríninu. Innlent 2.10.2026 10:28
Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent 14.9.2026 16:12
Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Hvernig fangar maður veitingastað í bók? Þegar Þröstur Valgarðsson sá um að prenta matseðla fyrir veitingastaðinn Hosiló fékk hann einmitt þá hugmynd. Yfir nokkurra mánaða skeið fór hann reglulega á vettvang, fékk sér mat, tók ljósmyndir og kom fyrir diktafónum til að taka upp samtöl starfsmanna. Afraksturinn er 212 síðna sjónræn frásögn um Hosiló. Lífið 10. september 2026 10:32
Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Listasafn Reykjavíkur og Hafnar.Haus opna saman kaffihúsið Kaffi H í Hafnarhúsi. Í tilkynningu segir að kaffihúsið verði á annarri hæð safnsins við Tryggvagötu. Viðskipti innlent 9. september 2026 13:40
Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Brotist var inn í Hygge bakarí á Barónsstíg í nótt. Töluverðum fjármunum var stolið úr peningakassa auk tölvu og síma sem var á staðnum. Axel Þorsteinsson, eigandi Hygge, segist feginn að ekkert starfsfólk var á staðnum. Öryggi þeirra sé í forgangi. Innlent 28. ágúst 2026 11:36
Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað. Innlent 23. ágúst 2026 16:37
Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Á menningarnótt, sem fram fór í Reykjavík í gærkvöld, sinnti lögregla virku eftirliti með áfengisdrykkju ungmenna og þurfti að hafa afskipti af töluvert mörgum vegna þessa. Innlent 23. ágúst 2026 07:19
Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Skiptum er lokið á tveimur félögum í eigu veitingamannanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar án þess að króna fengist upp í kröfur. Kröfur námu alls um 375 milljónum króna. Félögin ráku staðina TGI Fridays og Adesso í Smáralind og Grillhúsið. Annað félagið var enn skráð á fyrri eiganda þess þegar það varð gjaldþrota, enda höfðu Helgi og Jóhannes ekki greitt fyrir það. Viðskipti innlent 20. ágúst 2026 14:31
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18. ágúst 2026 21:03
Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út. Innlent 17. ágúst 2026 17:27
Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Dorrit Moussaief fyrrverandi forsetafrú vill fá að ræða við eigendur kaffihússins Lava Sweets í Keflavík og biðja þau afsökunar. Lífið 16. ágúst 2026 12:48
„Biðin er dýrust“ Dæmi eru um að veitingamenn þurfi að bíða í heilt ár eftir því að geta hafið rekstur vegna deilna við borgina. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) kallar eftir skýrum og hröðum samskiptum. Viðskipti innlent 13. ágúst 2026 20:55
Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Eigendur spænska veitingastaðarins La Barceloneta í Templarasundi munu skella staðnum í lás í hinsta sinn á sunnudag. Ástæðan er sú að þeir geta ekki leigt rýmið í Templarasundi áfram og þeir leita að nýju rými undir staðinn. Viðskipti innlent 10. ágúst 2026 16:38
Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Mikil spenna er á öllu vestanverðu landinu fyrir almyrkvanum á miðvikudag. Veitingamaður á Hellissandi ætlar að hafa lokað til að njóta sjálfur og leyfa starfsfólki sínu að upplifa þennan sögulega viðburð. Innlent 10. ágúst 2026 13:00
Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. Viðskipti innlent 9. ágúst 2026 14:35
Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Bandaríski leikarinn Jason Bateman, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum „Arrested Development“, var meðal gesta á veitingastaðnum Horninu um helgina. Hann var þar ásamt dóttur sinni Francescu Nora en hann á tvær dætur með eiginkonu sinni, leikkonunni og kvikmyndaframleiðandanum Amandu Anka. Lífið 9. ágúst 2026 09:41
Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Nýlega kynnti veitingastaðurinn Sbarro til sögunnar sólarhringsopnun á nokkrum sölustöðum á höfuðborgarsvæðinu. Lífið samstarf 31. júlí 2026 09:00
„Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Níels Hafsteinsson veitingamaður segir álagningu fínni veitingastaða hér á landi mun lægri en víða erlendis. Laun og opinber gjöld éti upp tekjurnar og íslenskir veitingamenn hafi verið of tregir til að hækka verð. Með sömu álagningu og á Tenerife myndi húsbjórinn á Rauða ljóninu kosta 3.950 krónur. Viðskipti innlent 26. júlí 2026 14:07
Starbucks kemur í stað Kaffitárs Kaffihúsakeðjan Starbucks mun opna nýtt útibú í Kringlunni þar sem Kaffitár var áður til húsa. Nýja verslunin mun opna í september. Viðskipti innlent 23. júlí 2026 11:42
Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Í byggingu sem áður hýsti vinnslustöð Klausturbleikju er núna verið að innrétta brugghús. Oddviti Skaftárhrepps segist treysta því að bjórinn verði jafngóður og bleikjan var. Innlent 22. júlí 2026 22:12
Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Eigandi veitingastaðar í Suður-Kóreu hefur verið ákærður fyrir notkun maura í matreiðslu. Hann á yfir höfði sér eins árs fangelsi og tveggja milljóna króna sekt. Athygli vekur að staðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er með tvær Michelin-stjörnur. Erlent 22. júlí 2026 08:23
Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 107 í vesturbæ Reykjavíkur um aðfaranótt mánudags og peningum stolið. Það er í annað skipti sem brotist er inn á staðinn á skömmum tíma. Innlent 21. júlí 2026 16:22
Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð Götubitahátíðin er einn stærsti matarviðburður Íslands og fer árlega fram í Hljómskálagarðinum. Þátttakendur í ár fylltu meira en fjörutíu matarvagna og sölubása. Lífið 19. júlí 2026 22:44