Gæti gránað í fjöll Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. september 2020 07:34 Veður fer kólnandi á norðanverðu landinu í vikunni og gæti gránað í fjöll. Vísir/Vilhelm
Í dag hreyfist dálítil lægð þvert norðaustur yfir landið og verður vindur suðvestlægur með skúrum á víð og dreif. Vindur verður þó hvergi hvass, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Það verður áfram hlýtt í veðri miðað við árstíma, einkum á Norðausturlandi, en á morgun kemur næsta lægð upp að suðausturströndinni og er öllu dýpri. Henni fylgir norðaustan strekkingur með rigningu og mun hiti falla talsvert á norðanverðu landinu. Sama er uppi á teningnum fram að helgi; ákveðin norðanátt með rigningu, einkum norðan og austan til og frekar kólnandi veðri. Það gæti jafnvel gránað í fjöll nyrðra. Veðurhorfur á landinu: Suðvestan 3-10 m/s og skúrir, einkum S- og V-lands. Snýst í norðaustan 8-13 á Vestfjörðum undir kvöld, en lægir heldur í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA til. Gengur í norðaustan 8-15 með rigningu á morgun, en úrkomuminna NV til. Kólnar heldur fyrir norðan. Á miðvikudag: Gengur í norðaustan 8-15 m/s, hvassast á Vestfjörðum og með A-ströndinni. Rigning á A-verðu landinu og á Ströndum, en annars úrkomuminna. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast sunnan heiða. Á fimmtudag: Útlit fyrir hvassa norðanátt með rigningu, en úrkomulítið S-lands. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst. Á föstudag: Hvöss norðvestanátt með rigningu N- og A-lands og slyddu til fjalla, en annars þurrt að kalla. Dregur úr vindi og léttir til seinni partinn, fyrst V-lands. Kólnandi veður í bili. Á laugardag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en lítilsháttar væta við NA-lands og hlýnar heldur í veðri. Á sunnudag: Sunnan strekkingur með rigningu og fremur hlýtt veður.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Sjá meira