SGS og Efling vísa kjaradeilu við sveitarfélögin til ríkissáttasemjara Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 28. maí 2019 10:19 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Björn Snæbjörnsson formaður SGS segja að ekki komi til greina að halda áfram viðræðum við sveitarfélögin fyrr en fulltrúar þeirra hafi samþykkt að jafna lífeyrisréttindi starfsfólks. Vísir/vilhelm
Starfsgreinasamband Íslands og Efling stéttarfélag hafa ákveðið að vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara vegna ósættis um lífeyrismál. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SGS og Eflingu. Viðræður SGS, Eflingar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um nýjan kjarasamning hafa staðið yfir undanfarnar vikur. Samningsaðilar hafa komið saman fimm sinnum. Í tilkynningunni kemur fram að það hafi komið fulltrúum Eflingar og SGS á óvart þegar fulltrúar sveitarfélaganna hafi neitað að ræða jöfnun lífeyrisréttinda fyrir starfsfólk sveitarfélaga innan aðildarfélaga ASÍ. Um jöfnun lífeyrisréttinda hefur þegar verið samið við Reykjavíkurborg og ríkið fyrir hönd hópsins. „Það kom því mjög á óvart þegar fulltrúar sveitarfélaganna neituðu með öllu að ræða þessa eðlilegu jöfnun þrátt fyrir fyrri fyrirheit þar að lútandi í tengslum við kjarasamninga 2015 og vilja ekki kannast við fyrri samþykktir. Í síðustu kjarasamningum voru sérstaklega tekin frá 1,5% til að jafna lífeyrisréttindin. Það er ótrúlegt að sveitarfélögin telji það eðlilegt að félagsmenn okkar búi við lökustu lífeyriskjörin í landinu“. Af hálfu SGS og Eflingar kemur ekki til greina að halda viðræðum áfram nema lífeyrisréttindi starfsfólks sveitarfélaganna innan ASÍ verði jöfnuð.
Kjaramál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira