Nægar sannanir til að sakfella Assad fyrir stríðsglæpi Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2017 10:01 Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hefur meðal annars verið sakaður um að beita efnavopnum á andstæðinga stjórnarhersins. Vísir/AFP
Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna á borgarastríðinu í Sýrlandi hefur safnað nægum sönnunum til þess að sakfella Bashar al-Assad forseta fyrir stríðsglæpi. Þetta segir Carla del Ponte, einn nefndarmanna og fyrrverandi saksóknari í stríðsglæpamálum. Del Ponte tilkynnti í síðustu viku að hún ætlaði að segja af sér. Hún er ósátt við að öryggisráð SÞ hafi ekki komið á fót sérstökum dómstól fyrir Sýrland sem gæti fjallað um stríðsglæpi og væri eðlilegt framhald á störfum nefndarinnar. Í viðtali við svissnesk dagblaðið SonntagsZeitung segist hún fullviss um að nægar sannanir séu komnar fram um sekt Assad, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. „Þess vegna er ástandið svona ergjandi. Undirbúningsvinnunni er lokið. Þrátt fyrir það þá er enginn saksóknari og enginn dómstóll,“ segir del Ponte sem sótti mál vegna stríðglæpa í Rúanda og Júgóslavíu sálugu á sínum tíma. Öryggisráðið hefur lítið sem ekkert aðhafst til þess að taka á stríðsglæpum í Sýrlandi. Assad er bandamaður Rússa sem eru með neitunarvald í ráðinu.
Sýrland Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Sjá meira