Sigmundur Davíð hættur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. apríl 2016 15:32 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er hættur sem forsætisráðherra en heldur áfram sem formaður Framsóknarflokksins. vísir/vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur ákveðið að segja af sér sem forsætisráðherra. Þetta tilkynnti Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, nú rétt í þessu. Að sögn Sigurðar Inga mun Sigmundur Davíð þó halda áfram sem formaður Framsóknarflokksins en stíga til hliðar sem forsætisráðherra. Hann sagði jafnframt fullan vilja til þess innan þingflokksins að halda áfram stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Tillagan um að Sigmundur Davíð myndi stíga til hliðar kom frá honum sjálfum. Sigurður Ingi mun taka við sem forsætisráðherra samkvæmt tillögu fráfarandi forsætisráðherra. Sigurður Ingi greindi einnig frá því að hann hefði átt í viðræðum við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, um að þeir hefðu fullan hug á því að halda stjórnarsamstarfinu áfram enda sagðist hann fremur vilja að ríkisstjórnin starfaði út kjörtímabilið en að boðað yrði til kosninga. Bjarni fundar nú með forseta Íslands á Bessastöðum og samkvæmt þessu má gera ráð fyrir því að hann muni leggja það til við forseta að samstarf þessara flokka í ríkisstjórn muni halda áfram. Hér fyrir neðan má sjá Sigurð Inga tilkynna afsögn Sigmundar Davíðs í beinni útsendingu rétt í þessu.Hér fyrir neðan má síðan fylgjast með beinni fréttaútsendingu Stöðvar 2 af framvindu mála.
Panama-skjölin Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira