„Það að enginn hafi leitað til okkar segir ekkert til um raunveruleikann“ Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2015 11:35 Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta 365/Þorbjörn Þórðarson „
Þannig hefur það verið undanfarin mörg ár, þau sem leita til okkar koma seint og um síðir,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona samtakanna Stígamóta, aðspurð hvort einhver hafi leitað til samtakanna vegna kynferðisbrota um eða eftir verslunarmannahelgina. Stígamót berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hafa orðið fyrir slíku ofbeldi. Guðrún segir mjög fáa hafa samband við Stígamót vikuna eftir verslunarmannahelgi. „Vegna þess að það telur sig geta komist yfir og grafið og gleymt það sem gerðist. Þegar það svo seinna áttar sig á því að það er ekki svo einfalt þá leita þau oft hjálpar hjá til okkar. Þau sem leita hjálpar strax leita gjarnan til neyðarmóttöku. Það að enginn hafi leitað til okkar enn þá segir ekkert til um það hvort og þá hversu mikið kynferðisofbeldi hefur verið framið yfir helgina,“ segir Guðrún. Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2014 leituðu tíu til samtakanna vegna kynferðisofbeldis á útihátíðum. Guðrún segir að það að enginn hafi leitað til samtakanna nú eftir verslunarmannahelgina segi ekkert til um hvort kynferðisbrot hafi átt sér stað. „Því miður, það að enginn hafi leitað til okkar segir ekkert til um raunveruleikann.“ „Við hvetjum þau sem kunna hafa verið beitt ofbeldi að leita hjálpar hjá neyðarmóttöku eða Stígamótum.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira