Sýknaður af ákæru um að hafa banað manni árið 1997 Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. desember 2012 16:57
Hæstiréttur sýknaði í dag Sigurþór Arnarsson sem var, árið 1998, dæmdur í Hæstarétti fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða manns. Atvikið átti sér stað á veitingastaðnum Vegas í maí árið 1997. Maðurinn sat í fangelsi í átján mánuði vegna málsins. Sigurþór Arnarsson var dæmdur til að sæta fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði, þegar dómur var kveðinn upp í Hæstarétti árið 1998. Sverrir Þór Einarsson var líka dæmdur fyrir aðild að málinu. Sigurþór var grunaður um að hafa sparkað í höfuð mannsins með þeim afleiðingum að hann lést af áverkum sínum. Þegar Hæstiréttur kvað upp dóminn árið 1998, sneri hann við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði þá komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi þótt nægjanlega sannað að það hafi verið Sigurþór sem sparkaði í manninn og veitti honum þá áverka sem leiddu hann til dauða. Enginn önnur gögn en framburður vitna voru til að styðja málssóknina og þótti framburður vitnanna ekki nægja til þess að sýna fram á sekt Sigurþórs. Eftir að dómur var kveðinn upp í Hæstaréttið árið 1998 var málið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Mannréttindadómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að reglur um réttláta málsmeðferð hefðu verið brotnar og nokkrum árum seinna var farið að huga að kröfu um endurupptöku málsins sem leiddi til niðurstöðunnar í dag.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira