Erlent

Fréttamynd

Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu

Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö

Karlmaður á sextugsaldri er í haldi sænsku lögreglunnar grunaður um að hafa stungið konu sem var einnig á sextugsaldri til bana fyrir utan matvöruverslun í Malmö í morgun. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og ná af honum hnífi.

Erlent
Fréttamynd

Endur­greiðir ekki ríkinu fyrir aug­lýsingarnar um­deildu

Donald Trump ætlar ekki að endurgreiða bandaríska ríkinu fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í sjónvarpi vestanhafs. Í gær sagði forsetinn að pólitísk aðgerðanefnd hans, MAGA Inc, myndi greiða fyrir auglýsingarnar sem hafa verið harðlega gagnrýndar, þar sem þær hafa verið fjármagnaðar með skattfé og þykja mjög pólitískar.

Erlent
Fréttamynd

Komin til með­vitundar eftir mis­heppnaða af­töku

Christa Pike er vöknuð og getur tjáð sig en hún er enn á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tennessee misheppnaðist í síðustu viku. Lögmenn hennar segja enn óljóst hvort hún muni ná bata og segja þeir að hún standi frammi fyrir löngu bataferli, verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi.

Erlent
Fréttamynd

Stýrði leyni­þjónustu en nú sakaður um njósnir

Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar BND var handtekinn í morgun en hann er grunaður um njósnir og landráð. August Hanning er sakaður um að hafa verið í samskiptum við leyniþjónustur að minnsta kosti tveggja annarra ríkja og deila með þeim leynilegum upplýsingum í gegnum öryggisráðgjafafyrirtæki sitt.

Erlent
Fréttamynd

Fær Nóbelinn fyrir að fanga fis­eindir í suður­skautsís

Belginn Francis Halzen hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag fyrir framlag sitt til rannsókna á svonefndum háorkufiseindum með uppruna í fjarlægum vetrarbrautum. Hann átti frumkvæði að því að nota ís á suðurpólnum til þess að greina fiseindirnar.

Erlent
Fréttamynd

Fyrsta af­takan með af­töku­sveit frá stríðs­lokum

Bandaríska varnarmálaráðuneytið segist ætla að taka fyrrverandi majór í hernum sem framdi mannskæða skotárás í herstöð af lífi með aftökusveit. Þetta verður í fyrsta skipti sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Um­deildur metsölu­höfundur látinn

Breski metsöluhöfundurinn og uppgjafarstjórnmálamaðurinn Jeffrey Archer er látinn, 86 ára að aldri. Hann gaf út skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda eftir að stjórnmálaferli hans lauk með skömm.

Erlent
Fréttamynd

Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec

Quebecbúaflokkurinn (Parti Québécois) vann fylkiskosningarnar í Quebec-fylki í Kanada í gær. Flokkurinn vill að fylkið lýsi yfir sjálfstæði frá Kanada og hefur leiðtogi flokksins, sem verður jafnframt að öllum líkindum næsti fylkisstjóri Quebec, lofað atkvæðagreiðslu um málið á næstunni.

Erlent
Fréttamynd

Missti hönd í mót­mælunum

Fimmtán ára drengur missti höndina þegar hann mótmælti fyrir utan framhaldsskóla í Frakklandi. Enn halda mótmælin áfram og fer umfang viðbragða lögreglu vaxandi.

Erlent
Fréttamynd

Ætlar að borga fyrir um­deildar aug­lýsingar úr eigin sjóðum

Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar.

Erlent
Fréttamynd

Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauða­hafs

Sveitir ríkisstjórnar Jemen hafa sótt hratt fram gegn Hútum við strendur Rauðahafs. Ríkisstjórnin segist hafa hernumið mestallt það svæði sem Hútar lögðu skyndilega undir sig í síðasta mánuði og mun ríkisstjórnin hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi við suðurenda Rauðahafs.

Erlent
Fréttamynd

Tugir í sótt­kví í Síberíu eftir and­lát starfs­manns rann­sóknar­stofu

Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið lögð inn á spítala. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar greina frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni sem er sögð hafa það helsta markmið að rannsaka skæða faraldra, það er að segja plágur.

Erlent
Fréttamynd

Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford

Bandaríkjamenn hafa flutt allar sprengjuflugvélar sínar frá herstöðinni RAF Fairford í Bretlandi en vélunum var flogið til Bandaríkjanna í gær. Bandaríkjamenn hafa flogið sprengjuflugvélum frá herstöðinni til Mið-Austurlanda undanfarna mánuði en í síðustu viku voru fimm menn handteknir grunaðir um hryðjuverk í nágrenni herstöðvarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Vann ó­væntan sigur í fyrri um­ferðinni

Flavio Bolsonaro, frambjóðandi hægri manna í Brasilíu, hafði betur gegn Lula Da Silva, sitjandi forseta landsins, í fyrri umferð forsetakosninganna í gær. Bolsonaro náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð þann 25. október.

Erlent
Fréttamynd

Stofnar „Ofur­greindar­stjórnina“ þrátt fyrir á­kall um hægari þróun

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa stofnað nýja verkefnastjórn sem á að sjá um málefni gervigreindar í Bandaríkjunum. Þetta gerir hann nokkrum dögum eftir að hann undirritaði tilskipun þess efnis að gervigreind myndi frekar bera heitið ofurgreind. Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækja hafa kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindarinnar af öryggisástæðum.

Erlent