Fréttir
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 334 ›
Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Kona á fertugsaldri var í gær handtekin í Bandaríkjunum, grunuð um njósnir fyrir kínverska ríkið. Á hún að hafa sent myndir af bílum og húsum sem fjölskylda forseta Taívan notaðist við. Erlent 5.10.2026 06:33
Slydda og snjókoma til fjalla Búast má við rigningu í norðausturfjórðungi landins en bjartviðri og norðanátt upp á þrjá til átta metra á sekúndu á vestanverðu landinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Veður 5.10.2026 06:31
Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá íbúa um að tveir menn hefðu stungið höfðinu inn um glugga dóttur íbúans. Lögreglan fór á vettvang. Innlent 5.10.2026 06:18
Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Lögreglan er sögð hafa handtekið athafnamann við komu til landsins í Leifsstöð í kvöld í tengslum við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem er til rannsóknar. Innlent 4.10.2026 23:03
Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Lögreglumaður í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið sýknaður af manndrápsákæru eftir að hann skaut svartan mann til bana í dyragættinni hjá honum árið 2024. Erlent 4.10.2026 22:28
Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Börn í 9.–10. bekk í Stórutjarnarskóla í Þingeyjarsveit voru í kennslustund þegar þau sáu út um gluggann nakinn hótelgest á Hótel Tjörnum í næsta húsi. Sveitarstjórn hefur brugðist við en vonast til að endanleg lausn finnist í málinu áður en starfsemi hótelsins hefst á ný í vor. Innlent 4.10.2026 20:51
Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Suðurnesjabæ er sprunginn aðeins rúmlega fjórum mánuðum eftir að hann var myndaður í lok maí. Innlent 4.10.2026 19:30
Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Forseti Jemen segist ætla að ráðast í umfangsmiklar hernaðaraðgerðir til að ná aftur öllu því landsvæði sem uppreisnarmenn Húta hafa lagt undir sig á síðustu árum. Sádar, sem eru helstu stuðningsmenn jemensku ríkisstjórnarinnar, hafa að undanförnu staðið í undirbúningi fyrir stórsókn gegn Hútum. Erlent 4.10.2026 19:00
Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Þingmenn Viðreisnar og Miðflokksins tókust á um málið í Sprengisandi. Innlent 4.10.2026 17:02
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Öryggisstjóri gervgreindarfyrirtækisins OpenAI hefur sagt upp störfum og gagnrýnir fyrirtækið fyrir að hafa ekki sýnt nægilega aðgát við þróun tækninnar. Erlent 4.10.2026 16:45
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Forstjóri stærstu bílaleigu landsins segist ekki vita hvort hann eigi að hlæja eða gráta yfir hugmyndum innviðaráðherra um breytingar á innheimtu hraðasekta. Starfsmenn bílaleiga geri vart annað en að sinna innheimtu fyrir ríkið þessa dagana. Innlent 4.10.2026 16:30
Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Hið árlega pestatímabil hefur leikið fjölda landsmanna grátt en Læknavaktin tekur á móti hundruðum skjólstæðinga á hverjum degi þessa stundina. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mikilvægt að fólk láti reyna á öll húsráð, slökun og annað sem því býðst heima fyrir áður en það geri sér ferð á heilsugæslur eða Læknavaktina. Það séu bæði kvef- og magapestir að ganga fólks á milli. Innlent 4.10.2026 15:41
Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Lagt er til að flytja starfsemi ráðhúss Húnaþings vestra tímabundið úr ráðhúsinu og yfir í Félagsheimili Hvammstanga. Ný skýrsla sýnir fram á alvarlegt ástand loftgæða í húsinu. Innlent 4.10.2026 15:41
Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð. Innlent 4.10.2026 14:52
Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Fjármálaráðherra segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum en passa upp á minnihlutaverndina. Innlent 4.10.2026 14:49
Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Rússar gerðu árás á mikilvæga brú í norðurhluta Kænugarðs í Úkraínu á sama tíma og kanslari Þýskalands mætti í heimsókn til borgarinnar. Erlent 4.10.2026 14:37
Mennirnir sem létust voru feðgar Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 4.10.2026 13:53
Arnarnesvegur opnar loks á morgun Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. Innlent 4.10.2026 13:37
Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hundruðum menntaskóla víðs vegar í Frakklandi verður lokað á mánudag vegna mótmæla menntaskólanema sem snúist hafa í óeirðir. Að minnsta kosti fimm þúsund hafa verið handteknir, flestir unglingar. Erlent 4.10.2026 13:26
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. Innlent 4.10.2026 13:03
Skjálfti upp á 3,4 Jarðskjálfti upp á 3,4 reið yfir rétt austan við Hamarinn á Vatnajökli nú í hádeginu. Innlent 4.10.2026 13:03
„Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir. Innlent 4.10.2026 11:56
Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við yfirlögregluþjón á Austurlandi um banaslysið sem varð þar í gær. Innlent 4.10.2026 11:39
Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Óþekktur málmhlutur sem fannst í sjónum nærri Helsinki í Finnlandi virðist samkvæmt frummati vera „mjög gamall vélrænn hluti úr skipsflaki“. Lögreglan á svæðinu lokaði fyrir skipaumferð á svæðinu og var finnski herinn kallaður til aðstoðar eftir að tilkynning barst um að trektlaga hlutur hefði fundist í sjónum suður af eyjunni Kustaanmiekka. Erlent 4.10.2026 10:47
Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu. Erlent 4.10.2026 10:30
Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Enginn var handtekinn í gærkvöldi þegar lögreglan fylgdist með samkomu Vítisengla við Auðbrekku í Kópavogi í gærkvöldi. Lögreglan hefur ítrekað fylgst með slíkum sakomum. Innlent 4.10.2026 10:30
Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Innlent 4.10.2026 09:49
Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. Innlent 4.10.2026 09:38
Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Mikill viðbúnaður lögreglu var í bænum Halden í morgun eftir skotárás þar sem tveir létust og einn særðist. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. Þeir þrír sem urðu fyrir skotum voru allir hluti af veiðihópi. Erlent 4.10.2026 09:15
Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Leitarhópar hafa fundið brak úr sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í gær, laugardaginn 3. október, en sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Enn er leitað að eftirlifendum á svæðinu þar sem brakið fannst en það er undan strönd Nantucket, eyju í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum. Erlent 4.10.2026 07:56