Seðlabankinn
1 2 3 4 5 6 … 63 ›
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði. Innlent 7.10.2026 14:03
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. Innlent 7.10.2026 13:04
Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. Innlent 7.10.2026 12:51
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. Innlent 7.10.2026 11:11
Óbreyttur tónn bankans og vonir um frið á vinnumarkaði lækkar markaðsvexti Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda vöxtum óbreyttum, stutt af öllum nefndarmönnum, var viðbúin og engar breytingar voru gerðar á framsýnni leiðsögn hennar. Skömmu áður hafði náðst samkomulag hjá stórum hluta launþegahreyfingarinnar við SA um að slíta ekki kjarasamningum og hafa skuldabréfafjárfestar tekið vel í þær fréttir og markaðsvextir óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað. Innherji 7.10.2026 10:25
Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:41
Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, munu gera grein fyrir ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:03
Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. Viðskipti innlent 7.10.2026 08:30
Halda 25 prósenta bónusþaki þrátt fyrir mun rýmri reglur á Norðurlöndum Stjórnvöld hafa fallið frá fyrri áformum um að tvöfalda hámark breytilegra launa hjá verðbréfafyrirtækjum og leggja þess í stað til að 25 prósenta þak verði áfram við lýði hjá þeim félögum sem falla undir strangari kröfur. Takmörkunin verður því enn mun meiri en þekkist annars staðar á Norðurlöndum, þótt samhliða sé lagt til að regluverk íslenskra verðbréfafyrirtækja verði almennt einfaldað verulega og reglubyrði þeirra minnkuð. Innherji 4.10.2026 14:30
Vaxandi verðbólguáhyggjur en vaxtahækkun kæmi „nokkuð á óvart“ Þótt verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun og rök séu fyrir því að Seðlabankinn herði taumhaldið enn frekar telja greinendur IFS líklegast að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreytum í næstu viku. Hagkerfið er í hægagangi, raunvextir áfram háir og óvissa á vinnumarkaði mikil, en ekki er útilokað að gripið verði til einnar vaxtahækkunar til viðbótar síðar á árinu. Innherji 3.10.2026 13:31
Óttast „harða lendingu“ með efnahagssamdrætti og verulegu atvinnuleysi Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“. Innherji 1.10.2026 10:53
Spá óbreyttum vöxtum Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár. Viðskipti innlent 30.9.2026 14:56
Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú. Viðskipti innlent 30.9.2026 14:02
Markaðurinn vanmetið gjaldeyrisinnflæðið af uppbyggingu gagnavera Peningastefnan er að hjálpa við að draga úr vexti einkaneyslu og fjárfestingu, sem veldur minni innflutningi á sama tíma viðskiptakjör útflutningsgreina eru góð, en það hefur ýtt undir mikla gengisstyrkingu á krónunni og þá er líklegt að markaðurinn hafi vanmetið gjaldeyrisáhrifin af stórfelldri uppbyggingu gagnavera, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur bankakerfið hafa búið vel í haginn til að takast á við óróleika á erlendum mörkuðum og það fyrirfinnist vart fyrirtæki sem er mjög skuldsett í erlendri mynt og gæti lent í vandræðum vegna endurfjármögnunar í útlöndum. Innherji 30.9.2026 10:42
Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði. Viðskipti innlent 29.9.2026 12:01
Fjárfestar snúa aftur í blandaða sjóði eftir nær stöðugt útflæði Eftir nánast stöðugt útflæði úr blönduðum sjóðum á undanförnum misserum hefur orðið viðsnúningur núna og fjárfestar bætt við sig í þeim fyrir marga milljarða á síðustu tveimur mánuðum. Á sama tíma er hins vegar ekkert lát á innlausnum í hlutabréfasjóðum. Innherjamolar 28.9.2026 15:08
Mikil gengisstyrking krónunnar knýr Seðlabankann í sín fyrstu inngrip í eitt ár Eftir mikla gengisstyrkingu krónunnar að undanförnu þá sá Seðlabankinn ástæða til að stíga inn á millibankamarkaðinn í dag með sérstökum inngripum og keypti gjaldeyri til að vega á móti gengishækkuninni. Þetta eru fyrstu gjaldeyrisinngrip bankans í ríflega eitt ár en raungengi krónunnar er núna í hæstu hæðum. Innherji 25.9.2026 16:42
Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Í lok ágúst voru 700 fleiri íslenskir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá en ári fyrr. Á kynningu Seðlabankans var skýrt hvers vegna bankinn horfir sérstaklega á atvinnuleysi þeirra: Líklegra sé að þeir séu með lán hjá bönkum og öðrum lánveitendum hér á landi. Viðskipti innlent 25.9.2026 13:23
Mælist til að bankarnir „safni eigin fé“ og séu umfram kröfur Seðlabankans Núna þegar það kann að reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, meðal annars vega óróleika á alþjóðlegum mörkuðum og erfiðrar stöðu á byggingamarkaði, þá er ástæða fyrir viðskiptabankana að huga að því að „safna eigin fé“ og vera tilbúna til að takast á við möguleg áföll, að sögn seðlabankastjóra. Arðgreiðslur og kaup bankanna á eigin bréfum hafa verið með mesta móti að undanförnu og nema samtals yfir hundrað milljörðum frá áramótum. Innherji 24.9.2026 15:24
Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Stýrivextir gætu hækkað frekar ef næstu kjarasamningar leiða til meiri launahækkana, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann varar við því að miklar launahækkanir ofan í kólnandi hagkerfi og háa vexti geti orðið upphafið að harðri lendingu. Viðskipti innlent 23.9.2026 14:42
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna og gera grein fyrir yfirlýsingu sinni á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Yfirlýsingin var birt í morgun en hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Viðskipti innlent 23.9.2026 09:00
Kólnandi hagkerfi og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins Óróleiki í alþjóðlegu efnahagslífi og hátt vaxtastig hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum gæti „reynt á viðnámsþrótt“ fjármálakerfisins, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún beinir sem fyrr einnig sjónum sínum að stöðunni á húsnæðismarkaði, sem einkennist af raunverðslækkunum og lengri sölutíma eigna, og segir þá þróun geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil. Innherji 23.9.2026 08:57
Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Skýr merki eru um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum segir hún geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Viðskipti innlent 23.9.2026 08:34
Aukinn launakostnaður gæti kallað á enn frekara aðhald Seðlabankans Þrátt fyrir vaxandi merki um kólnun í hagkerfinu, meðal annars á fasteignamarkaði, er útlit fyrir þráláta verðbólgu á komandi mánuðum og er þróunin á vinnumarkaði sögð geta ráðið miklu um hvort peningastefnunefnd Seðlabankans sjái ástæðu til frekara aðhalds. Spár flestra greinenda gera ráð fyrir að tólf mánaða verðbólgan hækki í nærri sex prósent í lok þessa mánaðar. Innherjamolar 22.9.2026 16:58
Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefur heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er skrefið stigið í von um að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni. Neytendur 20.9.2026 22:34
Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Umræðan um verðbólgu og hátt vaxtastig hefur ekki farið framhjá neinum undanfarnar vikur og mánuði. Þetta er í raun óboðleg staða fyrir bæði fólk og fyrirtæki og við viljum öll sjá trúverðugar aðgerðir stjórnvalda til að vinda ofan af ástandinu og vinna að raunverulegum árangri. Skoðun 20.9.2026 17:03
Áhersla ESB á miðstýringu er „viðvarandi áskorun“ fyrir EES-samninginn Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt. Innherji 20.9.2026 15:23
Seðlabankar styðjast við fleiri mælikvarða en skilaboðin verða óskýrari Seðlabankar víða um heim hafa í auknum mæli horfið frá því að horfa til eins tiltekins mælikvarða á undirliggjandi verðbólgu og styðjast þess í stað við safn ólíkra mælikvarða. Þótt það kunni að gefa betri mynd af verðbólguþrýstingi í hagkerfinu er hætta á því, samkvæmt nýrri greiningu, að skilaboðin verði óskýr og almenningur eigi erfiðara með að átta sig á hvaða mælikvarðar ráða mestu við vaxtaákvarðanir. Innherji 18.9.2026 11:42
Heimilin halda að sér höndum og kortaveltan skreppur saman milli ára Heimilin virðist vera farin að halda að sér höndum í neyslu en kortavelta Íslendinga, miðað við fast gengi og verðlag, dróst talsvert saman í liðnum mánuði. Verðbóguvæntingar á skuldabréfamarkaði lækkuðu eilítið í fyrstu viðskiptum í morgun. Innherjamolar 17.9.2026 10:45
Sendir röng skilaboð og hreyfir við verðbólguvæntingum á brothættum stað Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“ Innherji 14.9.2026 14:44