Niðurrif hafið á Laugasól Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist. Innlent 7.10.2026 22:01
Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ljósastaurar hafa bilað víða um höfuðborgarsvæðið í kvöld. Fregnir hafa borist af bilunum á stofnbrautum og í heilu hverfunum. Innlent 7.10.2026 20:59
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Allar tiltækar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut í kvöld þar sem kviknað hafði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í íbúðarhúsnæði. Innlent 7.10.2026 20:36
„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, er snúinn aftur til landsins eftir fimm ár í Noregi. Blankheit, iðandi íslensk tónlistarsena og frábær vinna með góðum vini drógu Gauk aftur til landsins og heldur hann tíu ára afmælistónleika plötunnar GKR í Iðnó þann 10. október næstkomandi. Sjálfur á hann von á því að margir séu búnir að gleyma honum en lofar trylltum tónleikum. Tónlist 6. október 2026 07:03
Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur. Einn var handtekinn. Innlent 6. október 2026 06:20
Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Brotist var inn í að minnsta kosti fjóra bíla í þremur hverfum höfuðborgarsvæðisins í dag og í eina verslun. Þá var ráðist á leigubílstjóra í Hlíðunum. Innlent 5. október 2026 23:06
Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Tónlistarkonan Ice Spice og leikkonan Millie Bobby Brown nutu sín á Íslandi ef marka má Instagram-færslur stjarnanna. Saman slökuðu þær á í sjóböðunum í Hvammsvík. Lífið 5. október 2026 22:20
Funheit í fimm ára afmæli Reykjavíkurborg iðaði af lífi sem aldrei fyrr um helgina og djammþyrstir partýpinnar biðu þolinmóðir í röð sem náði þvert yfir Lækjargötuna til þess að komast inn á klúbbinn. Tilefnið var fimm ára afmæli skemmtistaðarins Auto og öllu var til tjaldað fyrir fögnuðinn. Lífið 5. október 2026 20:02
Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Hinn 28 ára gamli Ísak Aron Jóhannsson er mikil stjarna í heimi matreiðslunnar og þykir einn fremsti kokkur landsins. Hann var að senda frá sér matreiðslubókina Bragð – Íslenskur matur og fagnaði því með pomp og prakt ásamt þotuliði úr kokkabransanum og góðum vinum. Lífið 5. október 2026 16:04
Opnuðu Arnarnesveg að hluta Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. Innlent 5. október 2026 15:52
Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Á föstudag verður kveikt á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn. Af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjórans í Reykjavík. Ávallt er kveikt á súlunni þann 9. október sem er afmælisdagur John Lennon. Lífið 5. október 2026 14:59
Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Um fjörutíu manns veiktust í hópsmiti sem kom upp í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni í síðustu viku. Nóróveira hefur greinst í tveimur sýnum en ekki hefur tekist að tengja smitið við tiltekin matvæli. Innlent 5. október 2026 14:39
Gjöld og byggingarréttur geta kostað 445 þúsund á hvern fermetra íbúðar Sveitarfélögin, einkum á höfuðborgarsvæðinu, geta lagt verulega af mörkum til að draga úr verðbólgu til lengri tíma með auknu framboði byggingarlands, lægri kostnaði við byggingarrétt og hraðari skipulagsferlum. Reiknidæmi fyrir uppbyggingu í Reykjavík sýnir að byggingarréttur, gjöld, samningskvaðir og fjármagnskostnaður geta saman numið um 445 þúsund krónum á hvern sölufermetra íbúðar áður en kostnaður við bygginguna sjálfa kemur til. Innherji 5. október 2026 14:34
Elegant herrar selja perlu í 101 Aron Freyr Heimisson og Einar Guðmundsson eru eitt smartasta par landsins og reka saman innanhússvöruverslunina Mikado Reykjavík. Þeir hafa nú sett einstaklega smekklega íbúð sína á Bergþórugötu á sölu. Lífið 5. október 2026 14:00
Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Reykjavíkurborg hefur greitt um 19,8 milljónir króna fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða frá því byggðin fluttist þangað. Innlent 5. október 2026 13:39
Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Margar af best klæddu konum landsins komu saman á Hverfisgötu síðastliðinn fimmtudag í tilefni af opnun nýrrar verslunar Andrá. Benni B-ruff þeytti skífum og freyðivínið flæddi. Lífið 5. október 2026 13:08
Tæplega þrjátíu sagt upp Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári. Viðskipti innlent 5. október 2026 10:49
Vill breyta umdeildum gatnamótum Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. Innlent 5. október 2026 10:38
Sveitarfélögin geta skipulagt lækkun verðbólgu Auka þarf sveigjanleika vaxtarmarkanna svo sveitarfélögin geti brugðist tímanlega við íbúðaþörf og lýðþróun og nýtt raunhæfa uppbyggingarkosti innan eigin marka. Heimila þarf breytingar á mörkunum vegna einstakra verkefna þegar þörf og forsendur uppbyggingar liggja fyrir. Að halda mörkunum óbreyttum þrátt fyrir breyttar þarfir er ekki hlutlaus ákvörðun heldur ákvörðun um að viðhalda vandanum. Umræðan 5. október 2026 10:32
Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá íbúa um að tveir menn hefðu stungið höfðinu inn um glugga dóttur íbúans. Lögreglan fór á vettvang. Innlent 5. október 2026 06:18
Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Lögreglan er sögð hafa handtekið athafnamann við komu til landsins í Leifsstöð í kvöld í tengslum við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem er til rannsóknar. Innlent 4. október 2026 23:03
Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð. Innlent 4. október 2026 14:52
Arnarnesvegur opnar loks á morgun Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. Innlent 4. október 2026 13:37
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna. Innlent 4. október 2026 07:35