Kanada

Kanada

Höfuðborg: Ottawa. Mannfjöldi: 41,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.984.670 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“

Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september.

Erlent
Fréttamynd

Hótar tollum vegna skógareldanna

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja nýja tolla á Kanada vegna skógareldana sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við.

Erlent
Fréttamynd

Gróðureldar loga stjórn­laust og fólki ráð­lagt að halda sig innan­dyra

Ríflega átta hundruð svæði hafa orðið gróðureldum að bráð víðs vegar um Kanada og viðvaranir hafa verið gefnar út í mörgum fylkjum Bandaríkjanna vegna versnandi loftgæða. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra þar sem loftgæðin eru hvað verst og hafa grímur verið gerðar aðgengilegar í sumum borgum sem og kælisvæði.

Erlent
Fréttamynd

Joanna Pettet er látin

Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leður­blöku á and­litinu

Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar.

Erlent
Fréttamynd

Aðflæðisvandinn

Ímyndum okkur stöðuvatn sem er að mengast. Fiskurinn drepst, vatnið gruggugt og fólkið í þorpinu hefur áhyggjur. Tvær leiðir blasa við.

Skoðun
Fréttamynd

HM í fót­bolta: Sameiningaraflið sem sundrar

„Hér verða allir velkomnir árið 2026,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, við fjölmiðlamenn á síðasta ári um komandi heimsmeistaramót. Nú er ljóst að sú setning er eins röng og hún hljómaði vitleysisleg þegar hún var látin falla.

Fótbolti
Fréttamynd

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“

Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake.

Tónlist
Fréttamynd

Hundruð þúsunda krefjast at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Alberta

Aðskilnaðarsinnar í Alberta-fylki í Kanada, segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum til að kveða á um atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Samkvæmt lögum í fylkinu þarf 178 þúsund undirskriftir til að þvinga yfirvöld til að halda atkvæðagreiðslu um tiltekin málefni en aðskilnaðarsinnarnir sögðust í gær hafa safnað nærri því 302 þúsund.

Erlent
Fréttamynd

Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum

Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að.

Erlent
Fréttamynd

Skaut ferða­mann til bana við mexíkóskan pýramída

Vopnaður maður skaut kanadískan ferðamann til bana og særði að minnsta kosti þrettán til viðbótar við Teotihuacán-pýramídann í Mexíkó í gær. Hann svipti sig lífi áður en lögreglu tókst að hafa hendur í hári hans.

Erlent