Bautista hleypur í skarðið Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. ágúst 2026 14:04 Bautista munu leika saman í God of War. Leikarinn Dave Bautista hefur verið ráðinn til að leika stríðsguðinn Kratos í sjónvarpsþáttum byggðum á tölvuleiknum God of War eftir að Ryan Hurst, sem átti upphaflega að fara með hlutverkið, slasaðist alvarlega í tökum. Bautista mun þar leika á móti Ólafi Darra Ólafssyni í hlutverki þrumuguðsins Þórs.
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum en þar kemur fram að kvikmyndaverin Amazon MGM Studios og Sony Pictures Television hafi hafið viðræður við Bautista skömmu eftir að ákveðið var að endurráða í hlutverkið í júlí. Bandaríski leikarinn Ryan Hurst, þekktastur fyrir mótorklíkuþættina Sons of Anarchy (2008-14), var upphaflega ráðinn í hlutverkið en reif tvíhöfða við tökur á áhættuatriði seint í júnímánuði, þegar fjórir mánuðir voru liðnir af tökum. Dave Bautista, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Guardians of the Galaxy (2014) og Blade Runner 2049 (2017), tekur við rullunni af samlanda sínum og mun væntanlega setja sitt mark á karakterinn með sínum mikla vöðvamassa og áralöngu reynslu úr fjölbragðaglímu. Undirbúningur fyrir tökurnar hefst í þessum mánuði og hefjast þær svo um miðjan október í Vancouver í Kanada. Byrja þær tökurnar algjörlega að nýju þar sem ekkert gamalt myndefni verður notað. Bautista fær því ekki mikinn tíma til að undirbúa sig en er í góðu líkamlegu standi eftir að hafa tekið upp kvikmyndina Highlander fyrr á árinu. Sjónvarpsþættirnir God of War byggja á samnefndri tölvuleikjaseríu sem hefur notið mikilla vinsælda á síðustu leikjatölvum Playstation frá 2005 til ársins í ár. Serían byggir aðallega á grískri og norrænni goðafræði en einnig koma við sögu guðir úr egypskri, babýlónskri og japanskri goðafræði. Þættirnir fjallaa um feðgana Kratos (Bautista) og Atreus (Callum Vinson) sem halda í ferðalag til að dreifa ösku Faye, konu Kratosar og móður Atreusar, og lenda þar í ýmsum hremmingum og ævintýrum. Til stendur að taka upp tvær seríur sem munu svo koma út á Amazon Prime.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Kanada Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira