Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. október 2026 11:02 Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í ár. Getty Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og fornfræðingur og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.
Sænska akademían greindi frá þessu á fréttamannafundi sem hófst klukkan 11, en Nóbelsverðlaunin verða formlega afhent í Stokkhólmi þann 10. desember á ártíð Alfreðs Nobel. Anne Carson er fædd í Toronto í Kanada 21. júní 1950 og ólst upp í ýmsum kanadískum smábæjum. Hún menntaði sig í fornfræði og er með doktorsgráðu í þeim fræðum frá Toronto-háskóla. Carson hefur skrifað nítján skáldverk, þýtt sjö forngrísk verk og vísar mikið í goðafræði og forngrískar bókmenntir í skrifum sínum. Hún er stödd á Íslandi í dag og komu verðlaunin henni mjög á óvart að sögn formanns Nóbelsnefndarinnar. Þekktustu verk Carson eru Eros the Bittersweet (1986), Autobiography of Red (1998) og Men in the Off Hours (2000). Í umsögn Nóbelnefndarinnar sagði að Carson hlyti verðlaunin fyrir „djarft og hugvitssamt höfundarverk sitt, sem væri í glettnu samtali við klassísku hefðina og hefði skapað ný form fyrir samtímabókmenntir.“ Carson kom fyrst til Íslands árið 2008 þegar hún dvaldi í listamannadvöl á Vatnasafninu í Stykkishólmi árið 2008 og heillaðist þá af landinu. Hún hefur verið með annan fótinn á landinu síðan þá, býr hluta ársins í Reykjavík og fengu hún og maður hennar, rithöfundurinn Robert Currie, íslenskan ríkisborgararétt. Þá hlaut Carson Vigdísarverðlaunin árið 2023 fyrir að hafa brotið blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. Ungverski rithöfundurinn László Krasznahorkai hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum á síðasta ári en hann er þekktur fyrir krefjandi póstmódernískar skáldsögur sínar, þar af er þeirra þekktust Satantango. Árið áður hlaut suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang verðlaunin. Fréttin verður uppfærð.
Bókmenntir Nóbelsverðlaun Svíþjóð Menning Tengdar fréttir László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Ungverski rithöfundurinn og handritshöfundurinn László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 9. október 2025 11:06 Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands. 10. október 2024 11:33 Norðmaðurinn Jon Fosse hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Norska leikskáldið Jon Fosse hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 5. október 2023 11:08 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Fleiri fréttir Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira
László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Ungverski rithöfundurinn og handritshöfundurinn László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 9. október 2025 11:06
Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands. 10. október 2024 11:33
Norðmaðurinn Jon Fosse hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Norska leikskáldið Jon Fosse hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 5. október 2023 11:08