Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Af­nema byggingarréttargjöld í Reykja­nes­bæ

Skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fella niður öll byggingargjöld á nýjar framkvæmdir. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir að ákvörðunin kunni að lækka kostnað við gerð 150 fermetra íbúahúsnæðis um rúmar fimm milljónir.

Sótti kíló af kókaíni á póst­húsið

Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.

Fimm ríki for­dæma nýjar landtökubyggðir á Vestur­bakkanum

Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.

„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi Icelandair á Íslandi.

Síminn orðinn Ásar hf

Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.

Bandbrjálaðist og hrækti á lög­reglu­mann

Beiðni barst í dag til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um aðstoð vegna veikinda. Þegar lögreglu bar að garði varð einstaklingurinn bandbrjálaður og hrækti meðal annars á lögregluþjón.

Ráðast í byltingar­kenndar endur­bætur í Kvosinni

Metnaðarfullt plan um endurgerð Kvosarinnar norðan Austurstrætis hefur litið dagsins ljós. Kvosin markast af Tjörninni í miðborg Reykjavíkur í suðri og Reykjavíkurhöfn í norðri. Hönnun verkefnisins er í höndum Batterísins arkitekta.

Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans

Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir það hafa verið áfall að sjá, eftir að hafa tekið við sem formaður velferðarráðs, hver vinnubrögð fyrri meirihluta höfðu verið. Gamli meirihlutinn hafi trekk í trekk verið búinn að skuldbinda borgina til að veita þjónustu sem ekki hafi fyllilega verið gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

Sjá meira