Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús Jochum er umsjónarmaður Lífsins á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Barnaspítalabindi Billy stal senunni

William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann bar enn einu sinni óvenjulegt og litríkt bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu.

Grétu af gleði þegar þær hittust loksins

Indverska konan Ambika Sharma, sem ólst upp í SOS-barnaþorpi, hitti loksins Guð­rúnu Haf­dísi Karls­dótt­ur 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeldri hennar. Ambika ætlaði að koma til Íslands í fyrra en fékk ekki vegabréfsáritun. Tárin féllu í stríðum straumum þegar þær hittust í Hamraborginni í gær.

„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“

Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, er snúinn aftur til landsins eftir fimm ár í Noregi. Blankheit, iðandi íslensk tónlistarsena og frábær vinna með góðum vini drógu Gauk aftur til landsins og heldur hann tíu ára afmælistónleika plötunnar GKR í Iðnó þann 10. október næstkomandi. Sjálfur á hann von á því að margir séu búnir að gleyma honum en lofar trylltum tónleikum. 

Hrútar orðnir að kóreskum kálfum

Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta.

Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina

Gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina í ár. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur haft markverð og varanleg áhrif á íslenskan gítarleik í gegnum árin.

Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir í viðtali við Mörtu Maríu að líf sitt sé á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman.

„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“

Menntaskólinn í Reykjavík fagnaði stórafmæli í gær en þá voru liðin 180 ár frá því hann var fyrst settur í Gamla skóla við Lækjargötu. Af því tilefni var haldin hátíðarmóttaka fyrir framan skólann þar sem rektor skólans flutti ræðu og fjölmargir nafntogaðir fyrrverandi nemendur fögnuðu tímamótunum. Fyrrverandi forsetinn Guðni Th. Jóhannesson hélt stutta tölu og minnti nemendur á að nám eigi að vera erfitt.

„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“

Mosfellingarnir Steindi Jr. og Dóri DNA snúa aftur með aðra seríu af ferðaþáttunum 1 stjörnu á Sýn+ í nóvember. Þar heimsækja félagarnir sex nýjar borgir og kynnast því hallærislegasta, skrýtnasta og slappasta sem þær hafa upp á að bjóða.

Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner

Leikarinn Michael Douglas hefur loksins gengist við því að hafa átt í leynilegu ástarsambandi með mótleikkonu sinni, Kathleen Turner, þegar þau tóku upp stórmyndina Romancing The Stone í Mexíkó árið 1984. Þau hafa alla tíð neitað fyrir sambandið sem Douglas ljóstrar nú upp um í nýrri ævisögu sinni.

Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, hefur minnkað áfengisneyslu sína til muna og segir kílóin hafa fylgt með. Hún hafi alla tíð verið grönn en byrjað að bæta á sig um fimmtugt. Inga þáði boð Smartlandsins þar sem hún var gerð fín og flott, klædd í alls konar föt frá aðilum sem auglýsa í blaðinu og spurð spjörunum úr.

Sjá meira