Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa. 7.10.2026 14:20
Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Karlmaður á sextugsaldri er í haldi sænsku lögreglunnar grunaður um að hafa stungið konu sem var einnig á sextugsaldri til bana fyrir utan matvöruverslun í Malmö í morgun. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og ná af honum hnífi. 7.10.2026 13:16
Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. 7.10.2026 11:31
Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hæstiréttur Spánar aflétti í gær handtökuskipun á hendur Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Katalóníu. Hann gæti því snúið aftur úr tæplega níu ára langri sjálfskipaðri útlegð frá því að hann stóð fyrir ólöglegri atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. 7.10.2026 10:35
Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Ný aðildarríki að Evrópusambandinu gætu verið svipt atkvæðarétti eða fjárveitingum ef þau brjóta gegn grunngildum sambandsins á fimmtán ára reynslutímabili ef tillögur framkvæmdastjórnar þess verða að veruleika. Sambandið vill koma í veg fyrir að nýr Viktor Orbán komi fram sem verði þrándur í götu þess. 7.10.2026 07:46
Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., sendi son sinn í fyrsta skipti á fund Alþjóðahvalveiðiráðsins í Ástralíu í síðustu viku. Fulltrúi utanríkisráðuneytisins fór fyrir sendinefnd Íslands en ráðuneyti sjávarútvegsmála hefur fram að þessu farið með það hlutverk. 6.10.2026 15:27
Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Donald Trump Bandaríkjaforseti er til í að leyfa Írönum að „taka út“ stórborgir í Kaliforníu þar sem demókratar eru í meirihluta í stríði hans við Persaflóaríkið. Ríkisstjóri Kaliforníu segir forsetann „sturlaðan“. 6.10.2026 15:03
Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina. 6.10.2026 11:49
Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Belginn Francis Halzen hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag fyrir framlag sitt til rannsókna á svonefndum háorkufiseindum með uppruna í fjarlægum vetrarbrautum. Hann átti frumkvæði að því að nota ís á suðurpólnum til þess að greina fiseindirnar. 6.10.2026 09:58
Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Bandaríska varnarmálaráðuneytið segist ætla að taka fyrrverandi majór í hernum sem framdi mannskæða skotárás í herstöð af lífi með aftökusveit. Þetta verður í fyrsta skipti sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. 6.10.2026 08:31