Útför Gunnars Þórðarsonar Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður Íslandssögunnar, verður borinn til grafar í dag. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju og hefst klukkan 15. 13.8.2026 14:00
Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Ansi löng röð hefur myndast í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í morgun. Talið er að fjöldi ferðalanga sem kom hingað til lands til að bera almyrkva á sólu augum í gær, sé nú á leið úr landi. 13.8.2026 10:33
Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Vefsíðan Kira Ísland hefur undanfarið birt fjölda auglýsinga á Facebook, ætlaðar Íslendingum, og sagst selja vörur, aðallega græjur fyrir heimilið og garðinn. Auglýsingarnar hafa nú verið fjarlægðar af Facebook. Kona sem keypti tvær ryksugur á síðunni fyrir rúmum tveimur vikum hefur enn ekki fengið þær afhentar. Hún hefur sent fyrirspurnir og leitað skýringa á þessu, en engin svör fengið. 12.8.2026 20:03
Bein útsending: Almyrkvi á sólu Líkt og alþjóð veit mun almyrkvi á sólu verða á vestanverðu landinu í dag. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá þessum atburði í spilaranum hér fyrir neðan. 12.8.2026 16:02
Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins, var lokaður inni í herbergi síðast þegar almyrkvi var á Íslandi fyrir rúmum sjötíu árum, en þá mun hann hafa verið fimm ára gamall. 12.8.2026 15:45
Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Hólmbert Aron Friðjónsson, fótboltamaður sem spilar í efstu deild í Suður-Kóreu, bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum um síðastliðna helgi. Það gerði hann ásamt liðsfélögum sínum hjá Gwangju FC. 11.8.2026 14:25
Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Karlmaður sem er grunaður um stórfellda líkamsárás sem beindist gegn sambýliskonu hans, nóttina eftir að hann hlaut dóm fyrir ofbeldi í garð hennar, þarf að sitja áfram í gæsluvarðhaldi, eða til fimmtudagsins 27. ágúst. 11.8.2026 12:51
Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Búið er að bera kennsl á mann sem lést í bílslysi í Þrengslunum sunnudagskvöldið 26. júlí síðastliðinn. Það var þó lögreglu erfiðara en oft, og þurfti hún að afla dómsúrskurðar til þess að framkvæma réttarkrufningu til þess að fá úr því skorið. 11.8.2026 11:02
Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Þriðji maðurinn, erlendur ríkisborgari, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints manndráps á Kársnesi í Kópavogi sem nú er til rannsóknar. Áður höfðu tveir menn, einn íslenskur og annar erlendur, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. 11.8.2026 09:14
Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu tvívegis á heimili sínu árið 2023. Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum segir að maðurinn hafi notfært sér traust konunnar vegna þess að hann var bílstjóri. 10.8.2026 16:38