Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn

Tónlistarkonan Ice Spice og leikkonan Millie Bobby Brown nutu sín á Íslandi ef marka má Instagram-færslur stjarnanna. Saman slökuðu þær á í sjóböðunum í Hvammsvík. 

Af­gerandi niður­staða um að slíta kjara­samningum

Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 

Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum

Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út.

Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu

Jarðskjálfti 4,7 að stærð reið yfir í Bárðarbunguöskju klukkan 17:28 síðdegis í dag. Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni en engin merki eru um gosóróa.

Meiri líkur en minni á að kjara­samningum verði sagt upp

Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess.

Portúgalsfarinn á bak við lás og slá

Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. 

Rúm­lega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir á­hrifum

Karlmaður var í dag dæmdur í nítján mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki var ævilöng svipting hans á ökuréttindum áréttuð en áður hefur maðurinn gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum sex sinnum.

Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás. Maðurinn er grunaður um að hafa veitt konu á fertugsaldri alvarlega áverka í fjölbýlishúsi í Kópavogi. 

Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins

Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Kristín og Kol­beinn eiga von á janúarbarni

Kristín Ólafsdóttir, fyrrverandi fréttakona og núverandi aðstoðarkona forsætisráðherra, og Kolbeinn Arnarson, meistaranemi í verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík, eiga von á sínu fyrsta barni.

Sjá meira