Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Sjálf­stæðis­flokkurinn tapar fylgi

Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og bætir við sig fylgi um rúmt prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi um tæp tvö prósentustig og Flokkur fólksins mælist enn utan þings. 

Gular við­varanir í nótt vegna rigningar

Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu klukkan tvö í nótt vegna mikillar úrkomu. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan þrjú síðdegis á morgun, miðvikudaginn 30. september.

Vinnu­vél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú

Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang.

Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum

Raunveruleikaþáttastjarnan Dani Bowman er stödd á Íslandi ásamt kærasta sínum Henry Andrade. Bowman gerði garðinn frægan sem þátttakandi í þáttunum Love on the Spectrum þar sem fólk á einhverfurófinu leitar að ástinni.

„Sorg­legt að þetta sé staðan“

Dómsmálaráðherra segir hótanir í garð ráðamanna vera ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkenni íslenskt samfélag. Hún sé sjálf meðal þeirra ráðamanna sem hafi borist hótanir. 

Rúm­lega tuttugu sagt upp hjá ÍAV

Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri.

Einum sleppt úr gæslu­varð­haldi og tveir eftir

Lögregla hefur sleppt einum þeirra þriggja sem úrskurðaðir voru í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu fíkniefna og peningaþvætti. Lögreglan  fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur til 2. október og þeim þriðja þangað til í dag.

Ekið á hjólreiðamann í Kópa­vogi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í dag þar sem ekið var á hjólamann í hverfi 200 í Kópavogi. Sá hlaut minni háttar áverka en var sendur á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu um störf dagsins.

Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta

Tíu ár eru liðin frá því að tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin gaf út sína fyrstu plötu, Þekkir Stráginn, þá aðeins sextán ára gamall. Til að fagna áratugnum í bransanum hélt Aron afmælistónleika í Laugardalshöll í gær þar sem síðustu tíu árin voru gerð upp.

Sjá meira