Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í Gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni. Lífið 10. ágúst 2026 11:01
Árekstur á Suðurlandsbraut Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsbraut um hálfníuleytið í kvöld. Einhverjir voru fluttir á sjúkrahús vegna hans. Innlent 9. ágúst 2026 21:56
Nokkrir handteknir vegna mannsláts Einn var handtekinn fljótlega eftir að alvarleg líkamsárás var framin í heimahúsi í Kópavogi í dag. Í kjölfarið voru nokkrir handteknir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Sá sem varð fyrir árásinni er látinn. Innlent 9. ágúst 2026 20:49
Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. Innlent 9. ágúst 2026 17:32
Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. Viðskipti innlent 9. ágúst 2026 14:35
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu sem var á leið sinni heim af Gleðigöngunni í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás en bakslag í málefnum hinsegin fólks sé raunverulegt og samfélaginu beri skylda að bregðast við. Innlent 9. ágúst 2026 14:18
„Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Það var margt um manninn og mikið um dýrðir síðasta sólarhringinn á höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsfólk hafði þar af leiðandi í nægu að snúast. Vanalega er slökkviliðið ræst út talsvert oftar á dagvöktum en næturvöktum en því var öfugt farið í þetta skiptið. Innlent 9. ágúst 2026 11:22
Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Sjö líkamsárásir rötuðu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, sem þykir heldur mikið, en fjöldi fólks var samankominn í miðborginni vegna Hinsegin daga sem fóru fram í vikunni. Nokkrir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild en ekki liggur fyrir hversu alvarlegar árásirnar voru. Innlent 9. ágúst 2026 11:01
Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Bandaríski leikarinn Jason Bateman, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum „Arrested Development“, var meðal gesta á veitingastaðnum Horninu um helgina. Hann var þar ásamt dóttur sinni Francescu Nora en hann á tvær dætur með eiginkonu sinni, leikkonunni og kvikmyndaframleiðandanum Amandu Anka. Lífið 9. ágúst 2026 09:41
Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Sjö mismunandi tilkynningar um líkamsárásir bárust vakthafandi lögreglu á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi var samankominn í miðborginni í gær en hin árlega Gleðiganga fór þar fram og var lögregla kölluð til vegna samkvæmishávaða á svæðinu. Innlent 9. ágúst 2026 07:45
Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Hápunktur hinsegin daga fór fram í dag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. Lífið 8. ágúst 2026 21:19
Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Flugvél Icelandair þurfti að hætta við að taka á loft frá Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir flugtak vegna fugls sem hafnaði á vélinni. Innlent 8. ágúst 2026 20:01
Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Mikið álag var á Strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag, enda stefndu margir á miðbæ Reykjavíkur þar sem Gleðigangan fór fram. Í Háaleitishverfinu ók troðfullur strætó án þess að nema staðar og hleypa inn farþegum á stoppistöð, en samkvæmt sjónvarvotti var Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á meðal þeirra sem komst ekki í vagninn. Innlent 8. ágúst 2026 19:02
Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli í dag vegna fólks sem virti ekki götulokanir í miðborginni vegna Gleðigöngunnar, sem hófst klukkan 14 í dag og lauk með tónleikum í Hljómskálagarðinum sem kláruðust nú um fimmleytið. Innlent 8. ágúst 2026 17:36
Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Eigendur Barnaloppunnar biðla til leigjenda sinna að áframselja ekki barnavörur keyptar í Góða hirðinum á hærra verði í versluninni. Innlent 8. ágúst 2026 14:58
Beint streymi frá Gleðigöngunni Hápunktur hinsegin daga fer fram í dag þegar Gleðigangan verður gengin frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og Bankastræti. Gangan hefst klukkan 14 og að henni lokinni fara fram útitónleikar í Hljómskálagarðinum. Innlent 8. ágúst 2026 13:49
Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Töluvert sírenuvæl vakti athygli íbúa þegar slökkviliðið brást við tilkynningu úr Mjölnisholti nærri miðbæ Reykjavíkur. Innlent 8. ágúst 2026 10:59
Hafnaði úti í fjöru Bíll hafnaði út í fjöru við Gufunes rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn alvarlega slasaður. Innlent 8. ágúst 2026 10:37
Endaði út af eftir framúrakstur Einn bíll hafnaði utan vegar eftir umferðarslys á Vesturlandsvegi í gær. Slysið varð vegna framúraksturs samkvæmt lögreglu. Einnig var tilkynnt um vasaþjófnað í miðborginni. Innlent 8. ágúst 2026 07:24
Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Teitur Atlason, fyrrverandi varaborgarfulltrúi, hefur fengið sig fullsaddan af innbrotahrinu sem nú geisar í miðborg Reykjavíkur og nágrenni. Nú síðdegis var brotist inn í bílskúr heimilis hans á meðan eiginkona hans var heima. Hann kallar eftir því að lögreglan taki sig taki og stingi þeim sem eru ábyrgir fyrir hrinunni í steininn. Innlent 7. ágúst 2026 16:52
Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Hinsegin dagar eru dagarnir okkar, ekki bara hinsegin fólks heldur okkar allra. Hinsegin dagar minna okkur nefnilega á að með samstöðu gerist svo ótal margt. Þá náum við árangri og ýtum úr vör mikilvægum breytingum í þágu mannréttinda okkar allra. Skoðun 7. ágúst 2026 15:30
Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný Íbúar í og við miðborg Reykjavíkur hafa orðið varir við ítrekuð innbrot í bíla í hverfinu. Einn íbúanna fann síma annars í bílnum sínum. Aðalvarðstjóri segir að tilkynningum um innbrot fjölgi á ný. Innlent 7. ágúst 2026 12:54
Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Von er á metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fer á morgun og taka fyrstu götulokanir í miðborg Reykjavíkur gildi núna í hádeginu. Mikil eftirvænting ríkir fyrir vagni tónlistarmannsins Páls Óskars. Innlent 7. ágúst 2026 12:00
„Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Ráðist var á Bjartmar Leósson hjólahvíslara við mathöllina á Hlemmi í gær. Bjartmar segir í færslu í Facebook-hópnum Hjóladót ofl. tapað, fundið eða stolið að hann hafi fengið eitt gott högg og að það sé „spenna í loftinu“. Hann segir annan hafa hótað að berja sig með járnröri. Innlent 7. ágúst 2026 11:22
Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Áfram var nokkuð um innbrot og þjófnaði miðsvæðis í Reykjavík í dag, samkvæmt skrá lögreglu yfir verkefni dagsins. Þá gerðust tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu sekir um það að vera í þriðja skipti teknir án ökuréttinda. Innlent 6. ágúst 2026 22:22
Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Sundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis. Innlent 6. ágúst 2026 19:52
„Það bara fannst ekki neitt“ Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst rétt fyrir klukkan fimm síðdegis tilkynning um reyk á stigagangi í Asparfelli. Viðbragð slökkviliðs er þó nokkuð þar sem um stórt fjölbýlishús er að ræða. Innlent 6. ágúst 2026 17:24
Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Hjónin Hrafnhildur Helga Össurardóttir og Árni Hjaltason hafa sett 162 fermetra einbýlishús sitt að Lokastíg á sölu. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum og er ásett verð 172,9 milljónir króna. Lífið 6. ágúst 2026 16:58
Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Yfirfullir fangaklefar hafa reynst lögreglu fjötur um fót í baráttunni gegn innbrotahrinu í miðbæ Reykjavíkur þar sem ekki hefur verið hægt að vista grunaða í fangageymslum. Lögreglufulltrúi segir lögreglu þó farna að sjá til lands en enn sé tilefni fyrir fólk að gæta vel að heimilum sínum. Innlent 6. ágúst 2026 12:00
Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Yngsta barnið sem fékk boð um vistun í leikskóla í Reykjavík í haust er fætt í júní 2025 og verður því um fimmtán mánaða þegar það hefur leikskólavist í haust. Innlent 6. ágúst 2026 08:07