Höfuðborgarsvæðið skalf Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin. Innlent 4. október 2026 00:42
Illa brugðið en heill á húfi Flugvél af gerðinni Skyhawk 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Innlent 3. október 2026 10:38
Handtekinn grunaður um að beita piparúða Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála og einn handtekinn, meðal annars grunaður um að beita piparúða. Sá var vistaður í fangageymslu á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 3. október 2026 08:05
„Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Verjandi Ming Ting Mancel í Edition-málinu segir hana hafa liðið illa að vera ein eftirlifandi eftir andlát eiginmanns síns og dóttur. Ming Ting hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir manndráp og brot í nánu sambandi. Verjandinn krafðist sýknu fyrir héraðsdómi og leggur áherslu á að málinu sé ekki lokið. Þá sé fjarri lagi að Ming Ting hafi ekki liðið illa við upprifjun á atburðum næturinnar örlagaríku í héraðsdómi. Lífið 3. október 2026 06:46
Ice Spice fór á klósettið á OTO Tónlistarkonan Ice Spice er á Íslandi en hún er einn heitasti rapparinn í Bandaríkjunum um þessar mundir. Lífið 2. október 2026 22:01
Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar hefur greinst með nóróveiru eftir að fjöldi starfsmanna fann fyrir veikindum í síðustu viku. Innlent 2. október 2026 17:53
Heiða í veikindaleyfi Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í tveggja mánaða veikindaleyfi frá störfum. Innlent 2. október 2026 16:44
Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Tveir unglingar voru bundnir þannig að þeir voru ósjálfbjarga og skildir eftir annars vegar fyrir utan heimili og hins vegar í kjallara fjölbýlishúss. Atvikin áttu sér stað á sitthvorum staðnum í Reykjavík. Málin eru bæði á borði lögreglunnar. Innlent 2. október 2026 15:41
Allir sautján frjálsir ferða sinna Þeir tveir sem sátu eftir í gæsluvarðhaldi af þeim sautján sem voru upphaflega handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á sölu fíkniefna og peningaþvætti eru nú lausir og frjálsir ferða sinna. Innlent 2. október 2026 15:16
„Við erum óþolinmóð“ Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri Tækniskólans segir að engum dyrum sé lokað þó að formlegar viðræður við Reykjavíkurborg séu hafnar um nýja staðsetningu skólans. Verið sé að skoða fleiri en einn möguleika í austurhluta borgarinnar og það sé lykiláhersla af beggja hálfu að vinna málið hratt. Innlent 2. október 2026 14:54
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur eru aftur komin í notkun eða verða opnuð á næstu dögum. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins gagnrýna að útiborð og hjólabogar séu fjarlægð til að rýma fyrir bílum. Innlent 2. október 2026 14:20
Fréttamaður missti af strætónum til baka Hversu einfalt og þægilegt er að taka strætó á Keflavíkurflugvöll nú þegar vagninn ekur farþegum alveg upp að flugstöðinni? Fréttastofa kannar málið í beinni útsendingu og ræðir við gesti og gangandi. Neytendur 2. október 2026 09:45
Beint: Opið málþing um heimilisleysi Reykjavíkurborg býður í dag til opins málþings um heimilisleysi frá klukkan 9:00 til 12:00 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Þar á að ræða hvernig samfélagið getur betur mætt fólki sem glímir við heimilisleysi. Fundurinn verður einnig í streymi á Vísi. Innlent 2. október 2026 08:46
„Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Leiðir Kristínar Svafarsdóttur og Þorbjargar Valgeirsdóttur lágu fyrst saman fyrir um áratug þegar Þorbjörg starfaði á Landspítalanum og Kristín var þar, afar veik af fíknisjúkdómi. Í dag er Kristín edrú, að læra til sjúkraliða og vill miðla reynslu sinni í þeirri von að aðrir sem veikir eru sjái að þau eigi möguleika til betra lífs. Innlent 2. október 2026 08:02
Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Hiphop-sveitin Arkir, skipuð þeim Introbeatz, Byrki B og 7Berg, mun hita upp fyrir vesturstrandarhiphop-sveitina Tha Alkaholiks í Iðnó 7. október. Tónlist 2. október 2026 07:42
Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann mikið magn vímuefna og fjármuna í bifreið manns sem stöðvaður var við hefðbundið umferðareftirlit í umdæmi stöðvar 1, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Innlent 2. október 2026 06:16
Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára. Innlent 1. október 2026 23:00
Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Fjórir menn voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi fíkniefna. Mennirnir eru taldir hafa tekið á móti þónokkrum fíkniefnasendingum síðustu vikur. Innlent 1. október 2026 11:57
Menning er ekki bisnessplan Margur gæti haldið að menning sé eitthvað sem hægt er að framleiða eins og hvern annan varning. Helst kannski þeir sem hafa æft sig í að skilja eða skipuleggja hefðbundna framleiðslu undir væntu eftirspurnarfalli. Skoðun 1. október 2026 08:32
Bíl ekið á ljósastaur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöld eða nótt tilkynnt um að bíl hefði verið ekið á ljósastaur. Í dagbók lögreglu kemur fram að engin slys hafi orðið á fólki en bíllinn hafi verið tjónaður. Ekki kemur fram hvar áreksturinn átti sér stað en tilkynning barst til Stöðvar 2 sem sér um Garðabæ, Hafnarfjörð og Álftanes. Innlent 1. október 2026 06:16
Tilkynnt um ölvaðan flugmann Lögreglu var í dag tilkynnt um „hugsanlega ölvaðan flugmann“ en þegar hún kom kom á vettvang reyndist hann vera allsgáður. Þá var óskað eftir aðstoð þegar ökumaður bifreiðar ók á húsvegg og var nálægt því að lenda á börnum sem voru nálægt. Innlent 30. september 2026 17:49
Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni og formaður borgarráðs, segir unnið að nokkrum sviðsmyndum um framtíðarnotkun húsnæðis eða lóða sem Reykjavíkurborg sagði upp við listamenn víða um borg. Brunavörnum hafi verið verulega áfátt og ekki hafi verið hagkvæmt að laga eða endurgera húsin. Innlent 30. september 2026 17:45
Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Kona sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í dag er fundin heil á húfi. Innlent 30. september 2026 16:28
Það þarf heilt þorp Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma í gær að endurvekja íslenska forvarnarmódelið í Reykjavík. Með ákvörðuninni er mikilvægt skref stigið í þá átt að nýta gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni markvisst í grunnskólum borgarinnar, greina stöðuna í nærumhverfi barna og ungmenna og byggja upp sameiginlegar aðgerðir til lengri tíma. Skoðun 30. september 2026 09:02
Staðráðnar í að koma sterkari til baka „Þetta er ein af stærri áskorunum sem við höfum þurft að takast á við, ekki bara í þessum rekstri heldur líka bara almennt,“ segir Steinunn Hrólfsdóttir, annar eigenda tískuverslunarinnar Andrá Reykjavík. Eldur kom upp í kjallara í rými verslunarinnar í byrjun september og átti eftir að hafa gríðarleg áhrif. Tíska og hönnun 30. september 2026 07:02
Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöldi tilkynnt um „afbrigðilega hegðun“ manns í Breiðholti, klæddum indíánabúningi. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi verið að leita sveppa. Innlent 30. september 2026 06:08
Karl Th. Birgisson borinn til grafar Ritstjórinn Karl Th. Birgisson var borinn til grafar í dag, þriðjudaginn 29. september, en útförin var gerð frá Hallgrímskirkju og var það séra Davíð Þór Jónsson sem söng yfir hinum látna. Lífið 29. september 2026 21:30
Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) harmar ákvörðun Reykjavíkurborgar að afnema stuðning við fimmtán menningarhópa í formi húsnæðis á sanngjörnu leiguverði. SÍM skorar á borgina að afturkalla þessar uppsagnir eða mæta þeim samstundis með nýrri aðgerðaáætlun. Innlent 29. september 2026 12:54
Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi þess í morgun verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir sem á að rísa í Laugardal. Áætluð verlok eru 2030 en Ísland á að vera meðal þjóða sem halda HM í handbolta árið 2031. Sport 29. september 2026 12:06
Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Skipulagsmál hafa lengi verið eitt heitasta umræðuefnið á kaffistofum borgarbúa. Það er ekkert skrítið. Fáar ákvarðanir borgarinnar hafa jafn bein áhrif á daglegt líf okkar. Skipulagið ræður miklu um það hvort við komumst greiðlega til vinnu, finnum bílastæði við heimilið, njótum birtu í íbúðinni og hvort uppbygging íbúða haldi í við þarfir borgarbúa. Skoðun 29. september 2026 07:31