Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Niður­rif hafið á Laugasól

Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls

Allar tiltækar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut í kvöld þar sem kviknað hafði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í íbúðarhúsnæði.

Innlent
Fréttamynd

„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“

Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, er snúinn aftur til landsins eftir fimm ár í Noregi. Blankheit, iðandi íslensk tónlistarsena og frábær vinna með góðum vini drógu Gauk aftur til landsins og heldur hann tíu ára afmælistónleika plötunnar GKR í Iðnó þann 10. október næstkomandi. Sjálfur á hann von á því að margir séu búnir að gleyma honum en lofar trylltum tónleikum. 

Tónlist
Fréttamynd

Fun­heit í fimm ára af­mæli

Reykjavíkurborg iðaði af lífi sem aldrei fyrr um helgina og djammþyrstir partýpinnar biðu þolinmóðir í röð sem náði þvert yfir Lækjargötuna til þess að komast inn á klúbbinn. Tilefnið var fimm ára afmæli skemmtistaðarins Auto og öllu var til tjaldað fyrir fögnuðinn. 

Lífið
Fréttamynd

Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs

Hinn 28 ára gamli Ísak Aron Jóhannsson er mikil stjarna í heimi matreiðslunnar og þykir einn fremsti kokkur landsins. Hann var að senda frá sér matreiðslubókina Bragð – Íslenskur matur og fagnaði því með pomp og prakt ásamt þotuliði úr kokkabransanum og góðum vinum.

Lífið
Fréttamynd

Opnuðu Arnarnesveg að hluta

Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga.

Innlent
Fréttamynd

Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn

Á föstudag verður kveikt á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn. Af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjórans í Reykjavík. Ávallt er kveikt á súlunni þann 9. október sem er afmælisdagur John Lennon.

Lífið
Fréttamynd

Tugir starfs­manna Reykja­víkur veiktust

Um fjörutíu manns veiktust í hópsmiti sem kom upp í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni í síðustu viku. Nóróveira hefur greinst í tveimur sýnum en ekki hefur tekist að tengja smitið við tiltekin matvæli.

Innlent
Fréttamynd

Gjöld og byggingarréttur geta kostað 445 þúsund á hvern fer­metra í­búðar

Sveitarfélögin, einkum á höfuðborgarsvæðinu, geta lagt verulega af mörkum til að draga úr verðbólgu til lengri tíma með auknu framboði byggingarlands, lægri kostnaði við byggingarrétt og hraðari skipulagsferlum. Reiknidæmi fyrir uppbyggingu í Reykjavík sýnir að byggingarréttur, gjöld, samningskvaðir og fjármagnskostnaður geta saman numið um 445 þúsund krónum á hvern sölufermetra íbúðar áður en kostnaður við bygginguna sjálfa kemur til.

Innherji
Fréttamynd

Elegant herrar selja perlu í 101

Aron Freyr Heimisson og Einar Guðmundsson eru eitt smartasta par landsins og reka saman innanhússvöruverslunina Mikado Reykjavík. Þeir hafa nú sett einstaklega smekklega íbúð sína á Bergþórugötu á sölu.

Lífið
Fréttamynd

Tæp­lega þrjá­tíu sagt upp

Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vill breyta um­deildum gatna­mótum

Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. 

Innlent
Fréttamynd

Sveitar­fé­lögin geta skipu­lagt lækkun verð­bólgu

Auka þarf sveigjanleika vaxtarmarkanna svo sveitarfélögin geti brugðist tímanlega við íbúðaþörf og lýðþróun og nýtt raunhæfa uppbyggingarkosti innan eigin marka. Heimila þarf breytingar á mörkunum vegna einstakra verkefna þegar þörf og forsendur uppbyggingar liggja fyrir. Að halda mörkunum óbreyttum þrátt fyrir breyttar þarfir er ekki hlutlaus ákvörðun heldur ákvörðun um að viðhalda vandanum.

Umræðan
Fréttamynd

Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig

Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð.

Innlent
Fréttamynd

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 

Innlent
Fréttamynd

Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna.

Innlent