Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Vogue fyrir heimilið 4. nóvember 2026 12:16 Í kvöld, miðvikudaginn 4. nóvember, býður Vogue fyrir heimilið til árlega kósýkvölds í Reykjavík og á Akureyri, frá kl. 18 til 21, þar sem tónlist, léttar veitingar og góð tilboð setja svip á kvöldið. Andrea Valdimarsdóttir er rekstrarstjóri verslunarinnar. Gott rúm þarf bæði að henta þeim sem sefur í því og falla vel að svefnherberginu. Hjá Vogue fyrir heimilið fara saman áratuga reynsla af íslenskri framleiðslu heilsurúma, persónuleg ráðgjöf og fjölbreytt úrval áklæða og fylgihluta. Í kvöld, miðvikudaginn 4. nóvember, býður verslunin svo til síns árlega kósýkvölds frá kl. 18 til 21, þar sem tónlist, léttar veitingar og góð tilboð setja svip á kvöldið.
Andrea Valdimarsdóttir, rekstrarstjóri Vogue fyrir heimilið, segir yfir 75 ára reynslu af framleiðslu heilsurúma hafa skilað fyrirtækinu þekkingu sem nýtist viðskiptavinum á hverjum degi. Engir tveir sofa alveg eins og því skipti máli að geta mætt ólíkum þörfum. „Á þessum tíma hefur byggst upp mikil þekking og sérhæfing í framleiðslu heilsurúma. Við höfum lært hvað skiptir máli fyrir góðan svefn og hvernig hægt er að mæta mismunandi þörfum hvers og eins.“ Hún segir jafnframt ákveðið öryggi felast í því að leita til rótgróins íslensks fyrirtækis. Áherslan sé á gæði, vandaða framleiðslu og persónulega þjónustu, enda sé rúmið mikilvæg fjárfesting í eigin vellíðan. Hægt að breyta stífleikanum eftir á Líkamsbygging, svefnvenjur og óskir um stífleika eru meðal þess sem þarf að hafa í huga þegar dýna er valin. Að sögn Andreu felst helsti kostur framleiðslunnar í því að hægt sé að laga dýnuna að viðskiptavininum og finna réttu samsetninguna með persónulegri ráðgjöf. „Helsti munurinn er sá að hjá okkur getur viðskiptavinurinn fengið dýnu sem er sérstaklega aðlöguð að hans þörfum, í stað þess að þurfa að velja úr fyrirfram ákveðnum útfærslum.“ Þar kemur íslenska framleiðslan sterkt inn. Hún veitir sveigjanleika til að bjóða sérlausnir og bregðast við óskum viðskiptavina. Þjónustan einskorðast heldur ekki við valið í versluninni. „Einn stærsti kosturinn við okkar dýnur er að þær eru framleiddar hér á landi og við getum opnað þær og breytt stífleikanum eftir á ef þörf er á. Það er nefnilega ekki alltaf auðvelt að átta sig á því í verslun hvað hentar best þegar maður sefur heila nótt í rúminu. Þess vegna bjóðum við líka upp á 30 daga skila- og skiptirétt.“ Andrea segir markmiðið einfalt: að fólk finni dýnu sem veiti því réttan stuðning og þægindi. Möguleikinn á að breyta stífleikanum eftir á sé því mikilvægur hluti af þjónustunni. Með framleiðslunni hér heima sé jafnframt haldið áfram að byggja á þeirri reynslu og handverksþekkingu sem hefur safnast hjá fyrirtækinu í gegnum áratugina. Heildarsvipur á svefnherbergið Þægindin skipta miklu en útlitið fær líka sitt pláss. Úrval áklæða í ólíkum efnum, áferðum og litum gerir fólki kleift að velja rúm sem fellur að eigin stíl og heimili. „Við leggjum mikla áherslu á að rúmið sé ekki bara þægilegt heldur líka fallegur hluti af svefnherberginu,“ segir Andrea. Hægt er að sérsauma ábreiður og skrautpúða í stíl við rúmið. Þá er mikið úrval gluggatjalda í boði, svo þeir sem vilja geta samræmt litina og skapað notalega heild. Þannig getur val á rúmi orðið fyrsta skrefið í að gefa öllu herberginu nýjan svip. Meðal þess sem verslunin býður er Dís rúmlínan, sem Andrea segir hafa notið mikilla vinsælda. Þar sé markmiðið að bjóða vönduð og þægileg íslensk rúm á góðu verði, með fallegu og tímalausu útliti. „Hægt er að velja á milli mismunandi áklæða og lita. Einn af stóru kostunum er að hægt er að aðlaga stífleika dýnunnar að þörfum hvers og eins og skipta um yfirdýnu eftir þörfum.“ Kósýkvöld í Reykjavík og á Akureyri Gestir kósýkvöldsins í kvöld geta jafnframt skoðað nýlegar breytingar á versluninni. Rýmið hefur verið endurskipulagt og Andrea segir að flæðið sé nú betra, svo auðveldara sé að skoða úrvalið og fá innblástur fyrir heimilið. Heimasíða Vogue fyrir heimilið hefur einnig verið endurbætt með það að markmiði að gera hana notendavænni. Jólavörurnar eru nú mættar og komu þeirra verður fagnað með notalegu kósýkvöldi í verslunum Vogue fyrir heimilið, bæði í Reykjavík og á Akureyri, í kvöld, miðvikudaginn 4. nóvember, frá kl. 18–21. Boðið verður upp á 20–30% afslátt af nánast öllum vörum. Vefnaðarvöru- og gluggatjaldadeildirnar verða þó lokaðar í kvöld. „Það verður einstaklega notaleg stemning hjá okkur með tónlist, léttum veitingum, drykkjum, góðum afsláttum og skemmtilegu happdrætti fyrir viðskiptavini,“ segir hún. Kvöldið er tilvalið tækifæri til að komast í jólaskap, fá innblástur fyrir heimilið og gera góð kaup fyrir jólin. „Við hvetjum alla til að kíkja við, njóta notalegrar stemningar, skoða breytingarnar og gera góð kaup. Það verður gaman að taka á móti ykkur!“
Hús og heimili Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Í dag verður stuð! Orkusalan frumsýnir tvær tónleikamyndir í kvöld Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Gjafir sem gleðja og endast frá Lín Design „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Sjá meira