Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Krabbameinsfélagið 19. október 2026 13:12 „Ef maður finnur eitthvað eða sér eitthvað, ekki hika við að fara og láta athuga það,“ segir Hrafnhildur en hún varð vör við breytingar á fæðingarblett. Hrafnhildur greindist með sortuæxli eftir að hafa tekið eftir breytingum á fæðingarbletti. Hún er stolt af sjálfri sér að hafa hlustað á innsæið og leitað til læknis. „
Ég er með mikið af fæðingarblettum, en þessi var svolítið öðruvísi,“ segir Hrafnhildur, sem greindist með sortuæxli. „Ég var búin að taka eftir breytingum á kannski tveggja, þriggja mánaða fresti, en var svo sem ekkert að kippa mér upp við það.“ Hún átti pantaðan tíma hjá húðlækni, en í kjölfarið á æfingarferð til Spánar, þar sem hún var mikið í sól, fór bletturinn að taka stöðugum breytingum. „Bara á viku fresti var hann upphleyptur, eða litlaus og svo allt í einu litamikill og að breyta um lögun.“ Hún fór að hafa áhyggjur þegar hana fór að klæja í blettinn og ákvað að hringja á Húðlæknastöðina og freista þess að komast fyrr að, sem var auðsótt. „Bletturinn er bara tekinn, sendur í ræktun og svo fæ ég símtal að það hafi fundist sortuæxli og ég þurfi að fara í uppskurð,“ segir Hrafnhildur. Niðurstaða rannsókna var að meinið væri ekki búið að dreifa sér og teldist staðbundið. „Það eru bara einhverjar bestu fréttir sem að maður gæti fengið.“ Í kjölfarið tók við eftirlit sem stendur enn yfir í dag. Stolt af því að hafa hlustað á innsæið Hrafnhildur segir að í sínu tilviki hafi verið um að ræða minniháttar mein sem hefði getað verið meiriháttar. „Ég var bara í rauninni mjög heppin. Hún segir við mig í símann læknirinn að ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal. Ég veit ekki ennþá í dag hvað það þýðir, en ég ætla að búast við að það sé ekki gott.“ Hrafnhildur segist stolt af sjálfi sér að hafa hlustað á innsæið og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama. „Ef maður finnur eitthvað eða sér eitthvað, ekki hika við að fara og láta athuga það.“
Heilsa Krabbamein Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu Sjá meira