Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Úrval Útsýn 29. október 2026 09:46 Hjónin Halldóra Geirharðsdóttir og Nicolas Pétur Blin taka við fararstjórn í skíðaferðum Úrvals Útsýnar á Ítalíu í vetur. Það verður nóg um að vera í ítalska skíðabænum Madonna di Campiglio í vetur þegar hjónin Halldóra Geirharðsdóttir, Dóra, og Nicolas Pétur Blin, Nikkó, taka við fararstjórn í skíðaferðum Úrvals Útsýnar. Þau þekkja svæðið vel eftir fjölmargar fjölskylduferðir og lofa góðum félagsskap, frábærum skíðabrekkum, ítalskri matargerð og hæfilegum skammti af húmor.
Eftir sjö farsæl ár sem fararstjórar Úrvals Útsýnar í Madonna hafa Dinna og Helgi ákveðið að halda á vit nýrra ævintýra. Við keflinu taka Dóra, leikkona og fyrrverandi prófessor við Listaháskóla Íslands, og Nikkó, líffræðingur og reyndur fjallaleiðsögumaður. Verkefnið helst raunar innan fjölskyldunnar því Dóra er litla systir Helga. Þegar ljóst varð að þau Dinna hygðust láta af fararstjórn lá því beint við að kanna áhuga hennar og eiginmannsins. „Við hjónin höfum alla tíð verið með hálfgerða fjalla- og skíðadellu, svo þegar okkur bauðst að sameina þetta tvennt með ítölskum mat og góðum félagsskap þurftum við ekki langan fund til að taka ákvörðun,“ segir Dóra. Töfrablanda í ítölsku fjallaþorpi Madonna di Campiglio er einn þekktasti skíðabær Ítalíu. Hann stendur í rúmlega 1.500 metra hæð í fallegu fjallaumhverfi Dólómítanna og státar af glæsilegum hótelum, veitingastöðum og verslunum. Hjónin hafa heimsótt bæinn margsinnis með börnum sínum og þekkja þar vel til. „Við höfum skíðað víða í Austurríki og Frakklandi en alltaf dregist aftur til Madonna með börnin okkar. Þar er einhver töfrablanda af frábærum brekkum, góðum mat, fallegum fjöllum og yndislegri stemningu. Okkur finnst augljóst að góður matur gerir skemmtilegasta fríið 170% betra,“ segir Nikkó. Einn helsti kosturinn er hversu aðgengilegur bærinn er. Stutt er í kláfana og öll hótel Úrvals Útsýnar eru í göngufæri við þá. Brekkur fyrir alla og góður matur á fjöllum Skíðasvæðið í Madonna er bæði stórt og fjölbreytt. Þar eru um 150 kílómetrar af brekkum og 58 lyftur. Hæstu brekkurnar ná upp í 2.600 metra hæð og hægt er að velja á milli blárra, rauðra og svartra brauta. Pradalago og Gröste henta vel þeim sem vilja þægilegri leiðir, en Spinale og Cinque Laghi bjóða meiri áskoranir. Þá eru Val di Sole og Pinzolo innan lyftukerfisins. „Það besta við Madonna er að allir finna eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að skíða langar leiðir á milli svæða eða velja sitt uppáhaldssvæði. Sumir vilja renna sér rólega niður bláar brekkur og vinna í stílnum, aðrir vilja láta lærin brenna í þeim svörtu. Ítalir eru líka þekktir fyrir að troða brekkurnar sínar vel,“ segir Dóra. Brautirnar hafa hlotið viðurkenningar fyrir gott viðhald og fjölmargir skíðaskólar bjóða kennslu fyrir alla aldurshópa. Því ættu bæði byrjendur og þaulvanir skíðamenn að finna eitthvað við sitt hæfi. Excel og fjögurra áratuga reynsla Dóra og Nikkó koma úr ólíkum áttum í atvinnulífinu en telja reynslu sína nýtast vel við fararstjórnina. „Dóra er leikkona og fyrrverandi prófessor við Listaháskóla Íslands og því vön bæði því að tilheyra hópi og stjórna stórum hópum. En leynivopnið hennar er að hún hefur gaman af Excel. Hún sér um skíðapassana,“ segir Nikkó. „Ég hef hins vegar leitt fólk um fjöll og firnindi í hátt í 40 ár og kann því ýmis ráð til að koma fólki heilu og höldnu heim.“ Þá daga sem þau leiðsegja í brekkunum ætla þau að skipta hópunum eftir getu og dagsformi. Þannig geti bæði þeir sem vilja skíða af krafti og þeir sem kjósa að fara sér hægar notið sín. Bæði ólust þau upp við að skíðaiðkun væri mikilvægur hluti fjölskyldulífsins. Nikkó ólst upp í Ölpunum en Dóra í Bláfjöllum, sem voru nánast hennar annað heimili. En hvort þeirra er betra á skíðum? „Við erum jafnvíg í brekkunum en með mjög ólíkan stíl,“ segir Nikkó. „ Dóra er með nútímalegan stöðugleika og gott bil milli skíða, eins og í braut, á meðan ég er meira dansandi með skíðin saman og langar helst í skíðagalla með axlarpúðum.“ Dóra segist jafnframt vera meiri skíðafíkillinn af þeim tveimur. Ítalir á leið að útrétta Það er ekki aðeins skíðamennskan sem heillar hjónin. Bærinn sjálfur er stór hluti upplifunarinnar, sérstaklega eftir góðan dag í brekkunum. „Madonna er ekki bara skíðasvæði heldur líka einstaklega fallegur ítalskur fjallabær. Þar eru notaleg kaffihús, frábærir veitingastaðir, skemmtilegar verslanir og líflegt mannlíf,“ segir Dóra. Henni finnst ekki síður gaman að fylgjast með heimamönnum. „Eftir góðan dag í brekkunum er yndislegt að rölta um bæinn, fá sér eitthvað gott og fylgjast með Ítölunum, sem virðast geta verið jafn glæsilegir við að útrétta og við Íslendingar á leiðinni í brúðkaup.“ Á skíðasvæðinu eru fjölmargir fjallaveitingastaðir, meðal annars Chalet Fiat á Spinale, Zeledria á Pradalago og Stoppani á Gröste. Í bænum sjálfum er sömuleiðis úrval veitingastaða þar sem gott er að njóta lífsins eftir skíðadaginn. Leyniperlur og skíðastíll frá 1985 Hjónin hlakka til að sýna ferðalöngum sínar uppáhaldsbrekkur, fallega útsýnisstaði og veitingastaðina sem þau hafa kynnst í gegnum tíðina.„Það er svo margt sem við getum deilt með fólki! Við elskum að skíða á milli svæðanna, finna fallega útsýnisstaði og setjast niður í góðan ítalskan hádegisverð uppi á fjalli,“ segir Nikkó. Þau eiga sínar uppáhaldsbrekkur og veitingastaði, bæði fyrir þá sem vilja skíða af krafti og hina sem vilja njóta lífsins á aðeins rólegri hraða. En þau ætla ekki að upplýsa strax um allar leyniperlurnar. „Það verður að vera einhver ástæða fyrir fólk að koma með okkur út, önnur en að sjá Nikkó skíða eins og árið sé 1985!“ segir Dóra og hlær. Úrval Útsýn býður upp á fimm vikulangar ferðir til Madonna frá 23. janúar til 27. febrúar. Í boði eru fjölbreyttir gistimöguleikar og íslensk fararstjórn. Flogið er til Verona og tekur aksturinn þaðan til Madonna um þrjár klukkustundir. Nánari upplýsingar um ferðirnar og bókanir fást hjá Úrvali Útsýn.
Skíðasvæði Ferðalög Mest lesið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Sjá meira