Fótbolti

Al­var­legar fréttir af Jesus de Miguel

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jesus de Miguel var fluttur beint á sjúkrahús og leikurinn flautaður af.
Jesus de Miguel var fluttur beint á sjúkrahús og leikurinn flautaður af. La Liga

Ástand spænska knattspyrnumannsins Jesus de Miguel hefur versnað eftir að hann fór í hjartastopp í gærkvöldi í kjölfar harkalegs áreksturs í leik í næstefstu deild á Spáni. 

Þetta skrifar félag hans, Tenerife, á X á þriðjudagsmorgun.

Jesus de Miguel var fluttur í skyndi á Universitario Nuestra Señora de Candelaria sjúkrahúsið eftir atvikið.

„Taugafræðilegt heilsufar Jesus de Miguel hefur versnað. Frekari upplýsingar verða aðgengilegar á næstu klukkustundum,“ skrifar spænska félagið á samfélagsmiðla sína.

Á mánudag greindi félagið frá því að ástand framherjans væri stöðugt en alvarlegt. 

Leikurinn var flautaður af eftir óhappið, sem átti sér stað í uppbótartíma, þegar markvörður Andorra fór af miklu afli í návígi á miðjuhringnum. 

Jesus de Miguel sá greinilega ekki mótherjann, sem var umsvifalaust rekinn af velli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×