Enski boltinn

Brotnaði niður á æfingu á síðustu leik­tíð en er nú næstur á eftir Haaland

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thierno Barry fagnar hér sigurmarki sínu á móti Newcastle í gærkvöldi.
Thierno Barry fagnar hér sigurmarki sínu á móti Newcastle í gærkvöldi. AP/Peter Byrne

Maður gærkvöldsins í ensku úrvalsdeildinni hefur farið frá því að eiga martraðarkennt fyrsta tímabil í að verða að hetju hjá Everton.

Thierno Barry skoraði sigurmark Everton á St. James's Park í Newcastle í gær og kom liðinu upp í sjöunda sæti deildarinnar.

Á síðasta tímabili skoraði Thierno Barry átta mörk í 41 leik en á þessu tímabili hefur það aðeins tekið hann tólf leiki að jafna þann markafjölda.

Í gærkvöldi skoraði Barry gegn Newcastle í annað sinn á fimm dögum og aðeins Erling Haaland (13 mörk) hefur nú skorað fleiri mörk en Barry (átta) af leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar í öllum keppnum á þessu tímabili.

Markið og svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Markið og færin í leik Newcastle og Everton

Hinn 24 ára gamli leikmaður er í sínu besta formi frá því að hann kom til félagsins frá Villarreal síðasta sumar, sem er eins gott því hann er sem stendur eini formlegi framherji Everton eftir félagaskipti Beto til Fiorentina.

Með því að skora enn á ný sýndi Barry hvers vegna Everton greiddi 27 milljónir punda fyrir framherja en það tók sinn tíma að komast á þennan stað.

Frakkinn fór illa af stað hjá Everton, átti aðeins eitt skot í fyrstu 16 leikjum sínum með Everton, og í síðasta mánuði birti hann myndband af sjálfum sér að brotna niður á einkaæfingu á síðasta tímabili.

Sú stund var í algjörri andstöðu við fagnaðarlæti hans á mánudagskvöld, sem hófust með hnjárennsli og enduðu með danssporum.

„Ég æfði mikið í sumar og nú sjáum við árangurinn. Tímabilið er langt en ég er ánægður með að hjálpa liðinu með mörkunum mínum,“ sagði Barry við Sky Sports eftir leikinn.

„Ég vil njóta mín meira en á síðasta tímabili og ég naut þess að fagna, svo ég er ánægður,“ sagði Barry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×