Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 13:03 Jamie Carragher baðst afsökunar á orðum sínum og nú hefur Aston Villa ákveðið að hætta við að stefna honum. Getty/Michael Regan Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur fallið frá hótun sinni um málsókn gegn Jamie Carragher, knattspyrnusérfræðingi Sky Sports.
Á föstudag hafði Villa sagst ætla að höfða mál gegn fyrrverandi varnarmanni enska landsliðsins vegna þess sem félagið kallaði „óásættanlegar móðganir“ sem Carragher lét falla í hlaðvarpinu Stick to Football. Fyrrverandi varnarmaður Liverpool orðaði þá Unai Emery, knattspyrnustjóra Aston Villa, við það að taka við af Michael Carrick hjá Manchester United og sagði stuðningsmönnum Aston Villa að „þegja“ þegar þeir gagnrýndu hann. Aston Villa have dropped their threat of legal action against Sky Sports pundit Jamie Carragher. https://t.co/qyVX1HB9SK— Match of the Day (@BBCMOTD) November 2, 2026 Carragher baðst afsökunar á laugardag á því að hafa notað „klaufalegt og rangt“ orðalag og sagði ummæli sín hafa verið „sögð í gríni“. Þótt Aston Villa hafi aldrei höfðað mál gegn Carragher hefur félagið nú fallið frá hótun sinni um að gera það í kjölfar afsökunarbeiðni hans. Emery, sem kom til Villa árið 2022, hefur gjörbreytt gengi félagsins. Spánverjinn hefur leitt félagið úr fallbaráttu yfir í að vera fastagestur í Meistaradeildinni, auk þess sem hann stýrði liðinu til sigurs í Evrópudeildinni árið 2026. Carragher gaf hins vegar í skyn að Emery myndi vilja stýra „risafélagi“ á ný, en hann hefur áður stýrt Paris St-Germain og Arsenal. „Það er ákveðin goggunarröð í fótbolta, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr,“ sagði Carragher meðal annars og endaði á því að segja: „Aston Villa verður aldrei Manchester United.“ Í færslu á samfélagsmiðlum á laugardag dró Carragher ummæli sín til baka. „Ég vil biðja Aston Villa, eigendur félagsins og stuðningsmenn þess afsökunar. Orðalag mitt í þessari viku var klaufalegt og rangt,“ skrifaði Carragher. „Ég get fullvissað stuðningsmenn Villa um að þetta var sagt í gríni, en ég skil að það hafi ekki komist þannig til skila, svo ég biðst afsökunar,“ skrifaði Carragher. 🚨 Aston Villa have dropped their threat of legal action against Jamie Carragher following his apology, but Nassef Sawiris has made it clear that any future insults or disrespectful comments about the club will not be tolerated. #AVFC https://t.co/xbxra8RuWB— John Townley (@johntownley11) November 2, 2026
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Sjá meira