Fótbolti

Leik­maður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mót­herja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Alexandersson og félagar fögnuðu góðum sigri en urðu fyrir slæmri upplifun í leiknum.
Freyr Alexandersson og félagar fögnuðu góðum sigri en urðu fyrir slæmri upplifun í leiknum. Getty/Tullio Puglia

Norska Íslendingafélagið Rosenborg hefur sent formlega skýrslu til norska knattspyrnusambandsins eftir að leikmaður liðsins varð fyrir meintu kynþáttaníði frá mótherja.

Leikmaðurinn er Amin Chiakha og atvikið varð í leik í norsku úrvalsdeildinni gegn Fredrikstad á laugardaginn.

Freyr Alexandersson er þjálfari Rosenborg og Alfreð Finnbogason er íþróttastjóri félagsins.

Norska félagið biður norska knattspyrnusambandið um að rannsaka atvikið ítarlega.

„Þetta er atvik sem við tökum afar alvarlega. Amin nýtur fulls stuðnings okkar og við væntum þess að málið verði rannsakað ítarlega. Kynþáttafordómar eiga hvorki heima í norskri knattspyrnu né í samfélaginu almennt,“ sagði Tore Berdal, framkvæmdastjóri félagsins, á vefsíðu þess.

Rosenborg biður norska sambandið einnig að endurskoða gula spjaldið sem Chiakha fékk í tengslum við atvikið. Félagið greinir frá því að það bíði nú afgreiðslu sambandsins á málinu.

Amin Chiakha er tvítugur framherji sem kom á láni frá FC Kaupmannahöfn og hefur skorað 17 mörk í 24 deildarleikjum, þar á meðal tvö í sigrinum á Fredrikstad.

„Það er mikilvægt að leikmönnum finnist þeir öruggir með að tilkynna ef þeir verða fyrir kynþáttafordómum eða mismunun. Enginn á að efast um að félagið standi að baki þeim þegar þeir láta í sér heyra,“ sagði Berdal.

Rosenborg leggur áherslu á að félagið hafi núllumburðarlyndi gagnvart kynþáttafordómum og mismunun og muni halda áfram að vinna að inngildandi og öruggu knattspyrnuumhverfi fyrir alla.

„Við stöndum saman að baki Amin í þessu máli. Baráttan gegn kynþáttafordómum er ábyrgð sem við deilum öll, og við munum alltaf tala skýrt þegar gildum okkar er ógnað,“ sagði Berdal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×