Fótbolti

Belling­ham fá­klæddur í nýrri aug­lýsinga­her­ferð Cal­vin Klein

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jude Bellingham átti frábæra heimsmeistarakeppni og fór á kostum með Real Madrid um helgina.
Jude Bellingham átti frábæra heimsmeistarakeppni og fór á kostum með Real Madrid um helgina. Getty/Jean Catuffe

Einn besti fótboltamaður heims er í aðalhlutverki í nýrri auglýsingaherferð tískurisans Calvin Klein og er á nærbuxunum einum fata á myndunum. Það er óhætt að segja að myndirnar hafi vakið athygli enda felur hann nánast ekki neitt á þeim.

Jude Bellingham er andlit nýju Icon Cotton Stretch-nærbuxnanna frá Calvin Klein, sem hann klæðist á myndum sem Oliver Hadlee Pearch tók.

Á myndum herferðarinnar sést miðjumaður Real Madrid og enska landsliðsins í nokkrum gerðum af nærbuxum.

„Ég naut þess virkilega að vinna að þessari herferð. Mér líkaði hugmyndin um „the icon underneath“,“ sagði Bellingham og útskýrði að sjálfstraust byrji á því að líða vel í eigin skinni.

„Calvin Klein er svo táknrænt vörumerki, svo það var frábært að gæða þessa hugmynd lífi á minn eigin hátt,“ sagði Bellingham um auglýsingarnar.

Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall hefur enski landsliðsmaðurinn fest sig í sessi sem ein skærasta unga stjarna fótboltans og áhrif hans ná sífellt út fyrir fótboltavöllinn.

Nýjasta samstarf hans heldur jafnframt áfram þeirri hefð Calvin Klein að fá þekkt andlit úr heimi íþrótta- og skemmtanaiðnaðarins til að vera í fararbroddi nærfataauglýsinga fyrirtækisins.

Herferðin hófst um allan heim í gær í verslunum, á calvinklein.com, á samfélagsmiðlum og í útiauglýsingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×