Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Tómas Arnar Þorláksson skrifar 2. nóvember 2026 12:09 Kerti og blóm hafa verið lögð við vettvang árásarinnar í dag. vísir/oddur Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöld í tengslum við manndráp í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni leikur grunur á að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Sonurinn er grunaður um að stinga tvo menn sem hafi reynt að kúga af honum fé í einhvern tíma.
Þrír menn voru handteknir aðfaranótt sunnudags grunaðir um aðild að manndrápi og alvarlegri líkamsárás. Lögreglu barst tilkynning um málið klukkan hálftvö um nóttina og voru tveir menn fluttir á slysadeild með alvarlega stunguáverka. Annar mannanna var úrskurðaður látinn skömmu síðar en hinn liggur enn á spítala þungt haldinn með nokkra stunguáverka. Feðgarnir illa leiknir eftir áflogin Atvikið átti sér stað á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti í Reykjavík en þrír menn voru í kjölfarið handteknir skammt frá vettvangi. Einn þremenninganna var látinn laus stuttu síðar en ekki liggur fyrir hvaða hlut hann átti að málinu. Svo virðist sem sá maður tengist ekki málinu með beinum hætti. Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær til mánudagsins 9. nóvember á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Sonurinn er grunaður um að stinga mennina tvo en ekki liggur fyrir hvort faðirinn sé grunaður um hlutdeild í málinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru feðgarnir saman á vettvangi þegar atburðarásin fór af stað. Þeir voru handteknir í heimahúsi í Breiðholti. Faðirinn hlaut alvarlega áverka á hendi við áflogin og þurfti að sauma hluta fingurs aftur á. Sonurinn var einnig með alvarlega áverka og illa leikinn eftir átökin. Nýlega snúið aftur heim frá Spáni Brotaþolar og sakborningar eru allir Íslendingar. Sonurinn og mennirnir tveir sem urðu fyrir árásinni eru á fertugsaldri. Faðirinn er tæplega sextugur. Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu mennirnir tveir sem urðu fyrir stunguárásinni reynt að kúga fé af árásarmanninum um nokkurt skeið. Hinn látni var 34 ára og var með fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað. Hann hafði um árabil búið á Spáni en hafði nýlega snúið heim til Íslands. Yfirmaður hjá lögreglunni segir grun um að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Feðgarnir sæta nú einangrun í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði.
Manndráp í Breiðholti Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira