Innlent

Göngu­stígar greiða leið um falda perlu við Stykkis­hólm

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sjálfboðaliðarnir Ásmundur Guðmundsson og Björn Sumarliðason, formaður Skógræktarfélags Stykkishólms, þekja göngustíg með trjákurli.
Sjálfboðaliðarnir Ásmundur Guðmundsson og Björn Sumarliðason, formaður Skógræktarfélags Stykkishólms, þekja göngustíg með trjákurli. KMU

Göngustígar sem lagðir hafa verið undanfarin ár í jaðri Stykkishólms hafa auðveldað aðgengi að fagurri náttúruperlu og gróskumiklum skógi. Stígagerðin hefur leitt til þess að svæðið nýtur vaxandi vinsælda til útivistar, jafnt meðal heimamanna sem ferðamanna.

„Þetta er falin perla og vonandi að fleiri uppgötvi hana,“ segir Björn Sumarliðason, formaður Skógræktarfélags Stykkishólms og forseti bæjarstjórnar. Skógræktarfélagið stendur fyrir verkefninu og vann hópur sjálfboðaliða að stígagerð um helgina.

Horft af gönguleiðinni yfir golfvöll Stykkishólms í átt að hótelinu og kirkjunni. Bekkirnir eru smíðaðir af föngum á Kvíabryggju.KMU

Svæðið er sunnan bæjarins, handan golfvallar Stykkishólms. Hægt er að ganga inn á stígakerfið úr bænum frá hótelinu og Víkurhverfinu um Móvík, sem nýtt er til sjósunds. Þaðan er gengið yfir sjöttu braut golfvallarins, í góðri sátt við meðlimi golfklúbbsins, að sögn Björns.

Magni Blær Hafþórsson sléttar út möl á göngustíg. Fjær sést inn í mynni Álftafjarðar.KMU

Önnur leið að svæðinu er frá kirkjugarðinum um akveg að skógræktarreit í Grensás, sem einnig er vinsæll upphafsstaður en þar eru bílastæði. Þar í svokallaðri Nýrækt hóf Skógræktarfélag Stykkishólms að planta trjám á árunum upp úr 1950. Hólmarar og gestir bæjarins njóta núna afraksturs áratuga skógræktarstarfs fyrri kynslóða en skógarstígar eru hluti stígakerfisins.

Fjölda bekkja hefur verið komið upp með reglulegu millibili meðfram stígum fyrir göngufólk að setjast niður og njóta náttúrunnar. Bekkirnir eru smíðaðir á Kvíabryggju af föngum.

Rauður bekkur í rjóðri innan um klettaborgir Grensáss.Björn Sumarliðason

Fyrsti stígurinn var lagður árið 2000, rétt fyrir covid, og kom sér þá vel, að sögn Björns, auk þess sem hann vakti athygli á svæðinu. Síðan hafa verið lagðir um fimmhundruð metrar af stígum á hverju ári og eru þeir núna orðnir samtals um fjórir kílómetrar að lengd.

Gönguleiðin liggur meðfram Nesvogi þar sem sjá má óvenju sterka sjávarfallastrauma, bæði í aðfallinu, þegar sjórinn flæðir inn á þröngan voginn, og aftur í útfallinu, þegar hann flæðir út. Vogurinn líkist þá fremur stórfljóti en við innanverðan Breiðafjörð er mestur munur á flóði og fjöru við Ísland.

Fögur gönguleið er meðfram Nesvogi. Þar má sjá sjávarföllin flæða út og inn. Náttúrulegt kjarr prýðir hluta svæðisins.KMU

Þetta sextíu hektara svæði býður upp á fjölskrúðugt fuglalíf. Meðfram ströndinni má sjá margar tegundir sjófugla, álftir eru áberandi á Nesvogi og ef heppnin er með gæti sést til hafarna. Smáfuglar halda til í skógræktinni og mófuglar eru líflegir á sumrin.

Útsýnið má telja tilkomumikið en göngustígar liggja einnig um holt. Þaðan sér yfir Breiðafjörð, með sínum óteljandi eyjum og skerjum, sem og mynni Hvammsfjarðar. Fögur sýn fæst til fjalla Snæfellsness, eins og Ljósufjalla, Drápuhlíðarfjalls, Grímsfjalls og Bjarnarhafnarfjalls.

Horft til vesturs í átt til Bjarnarhafnarfjalls og Eyrarfjalls. Nesvogur sést á vinstri hönd og Breiðafjörður til hægri.KMU

Skógræktarsvæðið í Grensás er svo ævintýri út af fyrir sig. Í hvassviðri má láta sig hverfa inn í skóginn sem veitir núna gott skjól. Göngustígar þvers og kruss um skóginn ná að orlofshúsabyggð í Arnarborg.

Í skóginum er skemmtilegt leiksvæði fyrir börn sem nemendur og kennarar Grunnskóla Stykkishólms hafa komið upp. Grunnskólanemendur og leikskólabörn fara reglulega í skóginn með kennurum í skipulögðum hópum.

Skemmtileg leiksvæði eru inni í skóginum.KMU

Fjárhús frístundabænda í grennd við skógræktina, með hænsnakofum innanum, virka sem húsdýragarður. Skógræktarfélagið hefur einnig komið upp borðum og grillaðstöðu í rjóðrum.

Að sögn Björns hefur Stykkishólmsbær styrkt verkefnið og lagt til vinnuflokka á vegum bæjarins. Hann segir félagsgjöld um tvöhundruð félagsmanna Skógræktarfélags Stykkishólms vega drjúgt sem og sjálfboðavinnu einstaklinga og nefnir hann sérstaklega í því sambandi Jón Jakobsson úr Rifgirðingum.

Hafþór Ingi Þorgrímsson mokar möl á flutningavagn. Vinnuvélarnar lánar fyrirtækið BB og synir.KMU

Björn segir verktakann BB og syni hafa lánað vinnuvélar endurgjaldslaust. Þá hafi alþjóðleg sjálfboðaliðasamtök Seeds lagt stígagerðinni lið og Skógræktarfélag Íslands sömuleiðis sent vinnuflokka. Landgræðslusjóður hafi veitt styrki árlega og fyrirtæki í bænum styrkt stígagerðina rausnarlega. Fyrirtækið Tak malbik hafi gefið malarefni í stígana og fyrirtækið Sérefni málningu á bekki. Þá hafi Skógræktin á Vesturlandi sinnt grisjun skógarins.

Í skógarrjóðrum eru borð og bekkir ásamt grillaðstöðu.KMU



Fleiri fréttir

Sjá meira


×