Innlent

Aðal­með­ferð í máli Írisar Helgu að hefjast

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Íris Helga huldi andlit sitt þegar hún mætti í dómsal í morgun.
Íris Helga huldi andlit sitt þegar hún mætti í dómsal í morgun. Vísir/Anton Brink

Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur hefst í dag. Hún sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar.

Að neðan má sjá þegar Íris mætti í dómsal í morgun.

Klippa: Íris mætir í dómsal

Aðalmeðferðin fer fram í Héraðsdómi Reykjaness og hafa sex heilir dagar verið teknir frá. Í ákærunni er Íris Helga sökuð um hótanir, ærumeiðingar, rangar sakargiftir, skjalafals og barnaverndarlagabrot á árunum 2022 til 2025.

Málið var þingfest um miðjan maí og neitaði Íris Helga allri sök. Hún lagði einnig fram kröfu um að réttarhöldin færu fram fyrir luktum dyrum en hafnaði dómari málsins þeirri kröfu. 

Íris Helga er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna.

Karlmaður sætir einnig ákæru fyrir hlutdeild að umsáturseinelti gagnvart sambýlisfólki, meðal annars með því að hafa makað saur á hurðarhúna heimilis og bíls fólksins. Við þingfestinguna neitaði hann einnig sök en baðst jafnframt afsökunar á aðkomu sinni að málinu.

Þremur dögum eftir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum gaf út ákæru á hendur Írisi Helgu var hún handtekin í tengslum við falska dánartilkynningu um mann í Morgunblaðinu.

Fréttin var uppfærð með aðalmynd úr dómsal í morgun rétt fyrir upphaf aðalmeðferðar klukkan 9.


Tengdar fréttir

Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur

Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna.

Með hnút í maganum yfir næstu skilaboðum eltihrellis

„Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum, þetta er stöðugt hangandi yfir mér, alla daga. Mér finnst ég vera rosalega varnarlaus. Ég er alltaf með hnút í maganum yfir því hvenær næsta færsla birtist á Facebook, hvenær næsta sprengja á eftir að koma,“ segir Garpur Ingason Elísabetarson.

Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli

„Ég þurfti að tala við strákana mína og vara þá við. Þannig að það var alveg samtal sem þurfti að eiga sér stað. Og svo sem ekkert í fyrsta skipti. Ég hef alveg þurft að tala við drengina mína áður um alls konar mál af því að líf blaðamannsins getur auðvitað verið flókið þegar maður er að gera þetta rétt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×