Innlent

Hrákinn endaði í and­liti og auga

Lovísa Arnardóttir skrifar
Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir áður hafa verið hrækt á sjúkraflutningafólk en það hafi ekki áður endað í andliti og auga.
Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir áður hafa verið hrækt á sjúkraflutningafólk en það hafi ekki áður endað í andliti og auga. Vísir/Anton Brink

Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir miður þegar sjúkraflutningamenn verði fyrir aðkasti eða hótunum á meðan þeir sinna starfi sínu. Greint var frá því í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær að hrækt hefði verið á sjúkraflutningamann aðfaranótt sunnudags. Um tuttugu prósent segja í könnun að þeir hafi orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni. 

„Það er alvarlegt og miður þegar sjúkraflutningamenn verða í sínum störfum fyrir svona hótunum um ofbeldi og að það endi með leiðindum og að hrækt sé á starfsmann,“ segir hann og að hrákinn hafi endað í andliti og þar með talið auga.

Birgir segir sjúkraflutningamenn hafa verið kallaða til og lögreglu sömuleiðis.

„Þetta er einstaklingur sem lögregla var að kljást við og við komum svo inn í það. Við lítum þetta alvarlegum augum en faglega eru líkur á smiti úr hráka í auga ekki miklar,“ segir hann.

Leita á slysadeild

Hann segir öll slík mál skráð sem atvik og það sé skýrt verklag þegar slökkviliðsmenn og sjúkraflutningafólk verður fyrir slíku að leita á slysadeild, fara í blóðprufu samdægurs og svo aftur innan nokkurra vikna.

„Sama hvort það er viljaverk eða óviljaverk verður að bregðast við því. Það hefur áður verið hrækt á okkur en ekki þannig að það fór í andlit,“ segir hann.

Slíkt verklag sé einnig virkjað við aðrar aðstæður eins og þegar fólk hefur stungið sig á nál eða rifið hanska við meðhöndlun á sjúklingum. 

Sjúkraflutningafólk þarf stundum vegna starfs síns að leita á slysadeild. Vísir/Vilhelm

Tuttugu prósent orðið fyrir áreitni eða ofbeldi

Hann segir reglulega gerðar kannanir meðal starfsfólks um líðan og upplifun í starfi. Í nýlegri könnun hafi verið spurt hversu margir hefðu orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni af hálfu utanaðkomandi á síðustu tólf mánuðum. Tuttugu prósent hafi svarað því játandi í nýjustu könnunni. Birgir segir hlutfallið of hátt.

„Við verðum því miður stundum fyrir aðkasti. Starfið felur það því miður í sér, því þó svo við séum í langflestum tilfellum að aðstoða fólk sem kallar á aðstoð og vill aðstoð þá er eðli starfsins og mannlífsins í borginni að við sinnum líka fólki sem er ekki alltaf sátt við það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×