Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. nóvember 2026 10:01 Eyjólfur þjálfaði son sinn Hólmar í landsliðinu. Samstarfið gekk vel en það gat verið óþægilegt fyrir Hólmar að sá gamli væri við stýrið. Vísir/Vilhelm/Sigurjón Hólmar Örn Eyjólfsson segir það ekki alltaf hafa verið einfalt að hafa föður sinn sem þjálfara er hann lék með U21 árs landsliði Íslands. Hólmar var fyrirliði liðsins sem fór fyrst íslenskra liða á EM í aldursflokknum.
U21 árs landslið Íslands sem fór á EM í Danmörku árið 2012 var að stórum hluta skipað leikmönnum sem áttu eftir að verða hluti af gullaldarlandsliði Íslands sem fór síðar á EM 2016 og HM 2018, fyrst A-landsliða. Hólmar segist hafa notið sín vel með liðinu. „Það var bara gaman sko. Það er náttúrulega auðvelt að segja það núna, en þú sást alveg að það var svona sérstaklega mikill vilji í hópnum og gír að ná langt bæði persónulega og sem lið. Það var rosa andi yfir þessu,“ „Svo er náttúrulega líka sérstakt að því leytinu til að pabbi er þjálfari þarna á þeim tíma. En maður fann alveg að það var eitthvað í farvatninu þarna,“ segir Hólmar um U21 árs liðið sem fór á EM í aldursflokknum í fyrsta skipti íslenskra liða árið 2012. Ekki alltaf einfalt Hólmar hafði þar orð á því að faðir hans stýrði liðinu. Eyjólfur Sverrisson var þjálfari U21 árs landsliðsins á árunum 2009-2018 (og reyndar einnig árin 2004-2005). En hafði það áhrif á Hólmar, eða var það sérstakt fyrir hann að faðir hann væri að þjálfa hann? „Það er ekki þægilegt sko. Það er eiginlega bara mjög óþægilegt að pabbi þinn sé þjálfari. Bara eins og er í liðum, menn hafa alltaf út á eitthvað að setja, einhverjir skipti á skoðunum. En ég held að menn hafi alveg passað sig að vera ekki að segja alltaf frá því,“ Menn hafi gætt sín þegar Hólmar var nærri ef þjálfarinn var ræddur. „Hólmar er mættur, passaðu þig,“ hafi menn hvíslað í klefanum að sögn Hólmars. Sir, yes, sir sagði Hólmar við föður sinn og þeim lenti ekki saman á meðan Eyjólfur þjálfaði U21 árs landsliðið.Vísir En lenti ykkur feðgum eitthvað saman á þessum tíma? „Mér og pabba? Nei. Ég gerði bara eins og mér var sagt.“ Þú varst leiðtoginn í því bara að fylgja honum. „Já, „sir, yes, sir“.“
Íslenski boltinn Landslið karla í fótbolta Tengdar fréttir 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Hólmar Örn Eyjólfsson lagði nýverið skóna á hilluna. Hann fór ungur að árum út í atvinnumennsku og tók stórt stökk frá HK til West Ham United á Englandi haustið 2008. Þar gekk á ýmsu. 31. október 2026 09:30 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals, lagði knattspyrnuskóna á hilluna um síðustu helgi 36 ára gamall. Ferlinum lauk með erfiðu tímabili með Val. Hólmar segir stundum erfitt að kyngja ákvörðunum hæstráðenda, til að mynda að hans bestu vinir í liðinu hafi verið sendir burt á einu bretti. 30. október 2026 08:30 Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira
18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Hólmar Örn Eyjólfsson lagði nýverið skóna á hilluna. Hann fór ungur að árum út í atvinnumennsku og tók stórt stökk frá HK til West Ham United á Englandi haustið 2008. Þar gekk á ýmsu. 31. október 2026 09:30
„Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals, lagði knattspyrnuskóna á hilluna um síðustu helgi 36 ára gamall. Ferlinum lauk með erfiðu tímabili með Val. Hólmar segir stundum erfitt að kyngja ákvörðunum hæstráðenda, til að mynda að hans bestu vinir í liðinu hafi verið sendir burt á einu bretti. 30. október 2026 08:30