Fótbolti

Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad

Valur Páll Eiríksson skrifar
Nik er horfinn á braut í Kristianstad.
Nik er horfinn á braut í Kristianstad. Vísir/Sigurður Már

Englendingnum Nik Chamberlain hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Kristianstad eftir tæpt ár í starfi. Hann fór frá kvennaliði Breiðabliks til að taka við sænska liðinu.

Chamberlain stýrði Breiðabliki til tveggja Íslandsmeistaratitla í röð áður en hann söðlaði um og fékk tækifæri til að stýra sænska Íslendingaliðinu sem var í mörg ár þjálfað af Elísabetu Gunnarsdóttur.

Nik skrifaði undir tveggja ára samning við Kristianstad síðasta haust en hefur nú verið látinn taka poka sinn eftir tæpt ár í starfi.

Samkvæmt sænskum fjölmiðlum er honum sagt upp sökum óánægju innan leikmannahóps liðsins með hans störf.

Kristianstad situr í fimmta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.

Þrír Íslendingar eru á mála hjá Kristianstad; Alexandra Jóhannsdóttir, Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Guðný Árnadóttir.

Linda Líf Boama spilaði einnig stóran hluta tímabilsins með liðinu eftir að hafa fylgt Nik frá Íslandi til Svíþjóðar í nóvember í fyrra en eftir stutt stopp samdi hún við Charlton Athletic á Englandi í ágúst.

Nik kom til Íslands fyrst sem leikmaður árið 2007 og var hér á landi stóran hluta af 15 árum, í það minnsta á sumrin. Hann spilaði fyrir Álftanes, ÍH, Huginn, Dalvík/Reyni, Fjarðabyggð, Aftureldingu, Þrótt og SR.

Nik var þjálfari kvennaliðs Þróttar frá 2016 til 2023 áður en hann tók við Breiðabliki og stýrði liðinu í tvær leiktíðir fyrir brottförina til Svíþjóðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×