Viðskipti erlent

„Stærsta tölvu­inn­brot sögunnar“ hjá raf­myntarisa

Lovísa Arnardóttir skrifar
Annar forstjóra fyrirtækisins þakkaði útgefendum rafmynta fyrir að frysta eignir sínar.
Annar forstjóra fyrirtækisins þakkaði útgefendum rafmynta fyrir að frysta eignir sínar. Vísir/Getty

Rafmyntakauphöllin Binance greindi frá því í gær að stór hluti eigna þeirra hefði verið frystur vegna þess að þau urðu fyrir því sem lýst hefur verið sem „stærsta tölvuinnbroti sögunnar“. Tvö greiningarfyrirtæki hafa rakið atvikið til norðurkóreskrar tölvuþrjótadeildar sem nefnist TraderTraitor.

Binance er stærsta rafmyntakauphöll heims og sagði í tilkynningu að um helmingur eigna sinna, að verðmæti 6,3 milljarða dala, hefðu verið frystar með aðstoð annarra fyrirtækja og bætti við að þau myndu bæta allt tjón. 6,3 milljarðar Bandaríkjadala jafngilda um 764,9 milljörðum íslenskra króna.

Binance svaraði ekki beint fyrirspurnum BBC um möguleg tengsl atviksins við Norður-Kóreu en sagði við þau að þau ynnu náið með samstarfsaðilum sínum innan löggæslunnar að því að „staðfesta deili á þessum glæpamönnum og draga þá til ábyrgðar.“

Þakkaði aðstoð

Í röð færslna þakkaði Yi He, annar af forstjórum Binance, ýmsum útgefendum rafmynta fyrir að frysta eignirnar.

„Öryggið fyrst: lokað hefur verið fyrir úttektir þar til staðfest hefur verið að umhverfið sé öruggt,“ sagði hún.

Í frétt BBC segir að sérfræðingar innan rafmyntageirans hafi lýst áhyggjum af mögulegu innbroti hjá Binance nokkrum klukkustundum áður en kauphöllin staðfesti öryggisvandann.

Binance, sem stofnað var í Kína árið 2017, gerir notendum kleift að eiga viðskipti með stafrænar eignir og er talið hafa yfir 300 milljónir skráðra notenda um allan heim. Kauphöllin hefur sætt eftirliti eftirlitsaðila víða um heim.

Stærsti fengur í slíku ráni hafði áður verið um 1,5 milljarðar sem fengust í innbroti til Bybit árið 2025. Þetta slær það út.

Í frétt BBC segir að fyrstu athuganir bendi til þess að fartölva verkfræðings sem brotist hafði verið inn í kunni að hafa komið við sögu, sem gerði þjófinum kleift að taka út fé án heimildar, að sögn Binance.

Tvö ólík greiningarfyrirtæki hafa rakið atvikið til norðurkóreskrar tölvuþrjótadeildar sem nefnist TraderTraitor.

Í frétt BBC segir enn fremur að TRM Labs, gervigreindarrannsóknarfyrirtækið, hafi greint frá því í skýrslu að ýmsir þættir árásarinnar á Binance líktust fyrri atvikum sem tengd hafa verið Norður-Kóreu, þar á meðal innbrotinu hjá Bybit.

Ari Redbord, alþjóðlegur yfirmaður stefnumála hjá fyrirtækinu, sagði í samtali við BBC að innbrotið hjá Binance markaði „tímamót“ og væri ólíkt nokkru sem greinin hefði áður kynnst.

Þjófurinn enn með háar fjárhæðir í sínum fórum

Hann bætti því við að innbrotsþjófurinn hefði enn í sínum fórum gríðarlegar fjárhæðir af stolnum eignum og að tilraunum til að rekja og endurheimta féð sé langt frá því lokið.

Haft er eftir Chainalysis, öðru greiningarfyrirtæki á sviði rafmynta, að það teldi „með mikilli vissu“ að norðurkóreski hópurinn tengdist innbrotinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×