Erlent

Fleiri gamal­menni en börn í Kína

Samúel Karl Ólason skrifar
Eldri borgarar í almenningsgarði í Fuyang í Kína.
Eldri borgarar í almenningsgarði í Fuyang í Kína. Getty/CFOTO, Future Publishing

Í Kína má nú í fyrsta sinn finna fleiri gamalmenni en börn. Kínverska þjóðin hefur verið að eldast nokkuð hratt á undanförnum árum og áratugum og fylgjast hagfræðingar náið með þessum tölum og því hvaða áhrif þessi þróun mun hafa á næststærsta hagkerfi heimsins og heiminn allan.

Hagstofa Kína birti í síðustu viku ný gögn sem sýna að 223 milljónir manna, eða 23 prósent þjóðarinnar, eru núna 65 ára eða eldri. Þá eru fjórtán ára börn og yngri orðin 213 milljónir talsins, eða 22 prósent þjóðarinnar.

Hér á Íslandi, þann 1. janúar í fyrra, var fjöldi 65 ára og eldri í heildina 61.752, samkvæmt gögnum frá Hagstofunni. Það samsvarar um 15,9 prósentum þjóðarinnar (389.444).

Fjórtán ára og yngri voru 69.701 eða 17,9 prósent þjóðarinnar.


Fæðingartíðni hefur aldrei verið lægri

Yfirvöld í Kína hafa reynt að grípa til aðgerða ætlað að auka fæðingartíðni. Fólk hefur verið hvatt til að gifta sig fyrr og byrja fyrr að eignast börn og eignast fleiri, eins og fram kemur í frétt BBC. Það hefur þó ekki borið árangur enn sem komið er.

Meðal ástæðna sem nefndar hafa verið fyrir þessari þróun er hækkandi framfærslukostnaður, aukið álag á fólk og breytt hlutverk kynjanna.

Fyrr á árinu voru gefin út gögn sem sýndu að í fyrra fæddust 7,92 milljónir barna. Það voru 1,62 milljónum færri börn en ári áður. Fæðingartíðni var 5,63 börn á hverja þúsund íbúa í fyrra og hefur aldrei verið lægri síðan mælingar hófust árið 1949.

Í heildina voru Kínverjar 1,404 milljarðar í fyrra en þeim fækkað um þrjár milljónir og hefur fækkað í fjögur ár í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×