Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. október 2026 13:29 Norræna ráðherraráðið fundaði í dag í Helsinki, Mette Frederiksen fremst í stafni ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra Íslands og Jens-Frederik Nielsen forsætisráðherra Grænlands. EPA/KIMMO BRANDT Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segist efins um nytsemi símtals starfsbræðra hennar í Noregi og í Finnlandi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti segist þakklátur stuðningi Norðmanna og Finna í stríðinu, hann hafi verið upplýstur um efnislegt innihald samtalsins. Pútín er sagður hafa kennt stefnu NATO og ESB um lengd stríðsins.
Greint var frá því í morgun að þeir Alexander Stubb forseti Finnlands og Jonas Gahr Støre forsætisráðherra hefðu rætt símleiðis við Pútín. Þeir hafa sagt samtalið hafa verið hreinskiptið og viðamikið, þeir hafi lagt áherslu á frið í Úkraínu. Nú kemur fram í umfjöllun norrænna miðla að símtalið hafi verið níutíu mínútna langt og er haft eftir Støre að bandamenn hafi verið upplýstir um símtalið fyrirfram. „Ég er mjög efins um þetta einkaframtak Norðmanna og Finna. Þetta var ekki gert í samráði við nokkurt okkar hinna,“ segir Mette Frederiksen í samtali við danska ríkisútvarpið. „Ég sé engin merki um að Rússland vilji frið í Evrópu, hvorki í ljósi blendingsstríðsins sem á sér stað á hverjum einasta degi né í ljósi stríðsins í Úkraínu þar sem Rússar halda árásum sínum áfram af hörku á hverjum degi. Ég tel að Evrópa eigi að standa saman í þessu máli í stað þess að hver fari sínar eigin leiðir.“ Hún segist ekki sjá hverju Norðmenn og Finnar haldi að þeir geti náð fram með samtalinu. Barist hafi verið fyrir samstöðu Evrópu gagnvart Rússum um árabil og segist Mette hafa látið óánægju sína í ljós við leiðtogana tvo. Rússar hafi hert árásir sínar frekar en hitt. Støre hefur ítrekað eftir gagnrýni Frederiksen að Noregur og Finnland hafi ekki talað fyrir hönd Evrópu við Pútín. Hann leggur áherslu á að Noregur sé nágrannaríki Rússlands og hafi því hagsmuni af því að viðhalda samskiptum við ríkið. Málið snúist ekki um sundrun heldur að gæta hagsmuna Noregs. Fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins að samkvæmt upplýsingum frá Rússum hafi Pútín sagt í samtali sínu við leiðtogana tvo að stefna ESB og NATO fæli í sér ögrun sem ætti þátt í því að lengja stríðið í Úkraínu. Pútín á einnig að hafa sagt að „friður sé aðeins mögulegur ef tekið er fullt og skilyrðislaust tillit til hagsmuna Rússlands.“ Þá hefur DR eftir Volodomír Selenskí forseta Úkraínu að hann hafi rætt símtalið við leiðtogana tvo. Hann segist þakklátur þeim fyrir ítarlega kynningu á samtalinu og fyrir virkan stuðning þeirra við erindreka Úkraínu og friðarumleitanir. Hann hafi þakkað leiðtogunum fyrir að hafa biðlað til Pútíns um að láta af árásum sínum á orkuinnviði í Úkraínu.
Noregur Finnland Danmörk Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira